Félagsmót Neista og úrtaka vegna fjórðungsmóts 2025

Sunnudaginn 22. júní verður haldið félagsmót og úrtaka á Blönduósvelli.
Skráningar skulu berast fyrir miðnætti fimmtudaginn 19. júní inn á SportFeng.com.
Skráningargjöld í fullorðins og ungmennaflokk er 4.500 kr. en börn og unglingar greiða kr. 3.500, pollar frítt. Í skeiði er gjaldið 3.500 kr. á hest.
Í gæðingatölti eru tveir flokkar og skulu börn skrá sig í unglingaflokk og ungmenni í fullorðinsflokk þannig að um er að ræða yngri og eldri flokk.
Skráningargjald skal greiða um leið og skráð er og senda kvittun á netfangið [email protected] kt. 480269-7139, Rn. 0307-26-055624.
Keppt verður í pollaflokki, barnaflokki gæðinga, unglingaflokki gæðinga, B-flokki ungmenna, B-flokki, A-flokki, gæðingatölti 17 ára á árinu og yngri, 18 ára á árinu og eldri. 100 m. skeiði.
Neisti.