Fyrir Grunnskólamótin í vetur voru hannaðir og heimasmíðaðir verðlaunapeningar úr plexigleri en....
hugmynda af þeim fékk Kristín Brynja Ármannsdóttir á Sauðárkróki þegar hún heimsótti verknámshús Fjörlbrautarskóla Norðurlands vestra þar sem FabLab vinnustofa er staðsett. Sigríður Ólafsdóttir í Viðidalstungu hannaði hestinn og Kristín vann síðan peninginn í tölvu og skar hann út í FabLab vinnustofunni. Færum við þeim Kristínu og Sigríði bestu þakkir fyrir, aldeilis frábær hugmynd, skemmtileg og öðruvísi.
Harpa Birgisdóttir, formaður,
Magnús Sigurjónsson, Kristján Þorbjörnsson, Sonja Suska, Berglind Bjarnadóttir.
- - - Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.