sem vera átti á Hjúkatjörninni 05.apríl verður frestað til laugardagsins 11.apríl og mun þá koma í ljós hvort mótið verður á tjörninni eða í höllinni. Skráning verður í höllinni þennan sama dag og nánari uppl.
Keppt verður í : Börn = Tölt Fullorðnir = Tölt og Firmakeppni Skráningagjald er: fullorðnir kr:1000. Börn kr:500.
Fyrirhugað grunnskóla sem halda átti á Hvammstanga 4.apríl verður haldið í reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi sama dag eða 4.apríl kl. 14.00
Skráningar verða að hafa borist fyrir kl. 17.00 miðvikudaginn 1.apríl 2009 á [email protected] (nýtt e-mail æskulýðsnefndarinnar) og fram þarf að koma nafn og aldur knapa og hests, litur og upp á hvora hönd á að ríða.
Skráningargjald er 500.- krónur og greiðist á keppnisstað.
Keppt verður í sömu greinum og á mótinu á Sauðárkróki
1.-3.bekkur - Fegurðarreið
4.-7.bekkur - Tölt / Þrígangur / Smali
8.-10.bekkur - Tölt / Fjórgangur / Smali / Skeið
Þannig Grunnskólamót reiðhöllinni Arnargerði 4.apríl 2009
Stórsýningin var í gær laugardag og tókst að öllu leyti vel þótt veðrið hafi verið hundleiðinlegt.
Frumkvöðlinum Árna Þorgilssyni var sérstaklaga þakkað við þessi tímamót fyrir að hafa byggt Reiðhöllina í Arnargerði og hreinlega lagt gull í lófa okkar húnvetnskra hestamanna eins og Grímur heitinn Gíslason orðaði það. Árni kom hingað fyrir 10 árum síðan og hóf byggingu hússins 1999 og var opnunarsýningin í mars 2000. Hún hefur fært okkur margar ánægjustundirnar og starf okkar hestamanna hér væri ekki svona blómlegt nema af því við höfum þessa frábæru Reiðhöll. Frábært framtak hjá Árna Þorgilssyni og þökkum við kærlega fyrir það.
Flestir hestamann á svæðinu komu fram í atriðum og um 50 börn og unglingar voru í 9 atriðum af 21. Virkilega gaman að sjá hvað þau er flink og hafa sett upp skemmtilegt atriði á stuttum tíma. Æskulýðsnefnd veitti Hörpu Birgisdóttur viðurkenningu fyrir góðan árangur og framför á árinu 2008 sem knapa ársins í unglingaflokki.
Sigurbjörn Bárðarson tamningameistari kom og sýndi okkur gæðingafimi og sagði okkur hvernig hann notar reiðhöll til tamninga. Hann var einmitt hér á 1. sýningunni svo það var einstaklega gaman að hann skyldi sjá sér fært að koma og vera með okkur á 10. sýningunni.
Sýning verður ekki að veruleika nema með góðu starfsfólki, þátttakendum og áhorfendum. Viljum við þakka öllum sem komu að þessari sýningu, á einn eða annan hátt, kærlega fyrir.
Sýningin var tekin upp af Kristjáni Blöndal og mun diskur verða til sölu fljótlega, verður það auglýst síðar. Ef einhver lumar á skemmtilegum myndum væri gaman að fá þær, senda þær á [email protected] og verða þær settar hér inn á myndaalbúm.
Auðunn Sigurðsson og Sigríður Aadnegard tóku þessar myndir sem komnar eru inn á myndaalbúm og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
Síðasta mótið í húnvetnsku liðakeppninni verður haldið föstudagskvöldið 3. apríl nk. í Hvammstangahöllinni og hefst kl. 18.00 Skráning hjá Kollu á emeil: [email protected] og þarf að vera lokið fyrir miðnætti þriðjudagskvöldsins 31. mars. Fram þarf að koma nafn knapa, hests, litur, aldur, ætt, í hvaða liði viðkomandi er og upp á hvora hönd.
Liðakeppnin stendur þannig fyrir lokamótið:
1. sæti er Lið 3 með 100,5 stig 2. sæti er Lið 2 með 83,5 stig 3. sæti er Lið 1 með 52,5 stig 4. sæti er Lið 4 með 41,5 stig
Stórsýning húnvetnskra hestamanna Í Reiðhöllinni Arnargerði
laugardaginn 28. mars kl. 14:00.
Í ár höldum við 10. sýninguna en Reiðhöllin er 9 ára um þessar mundir. Að þessu sinni er sýningin borin uppi af almennum hestamönnum og konum á öllum aldri og u.þ.b. 50 börnum/unglingum. Markmiðið er að sýna þá miklu breidd sem er í iðkendahópnum hér í héraðinu og hvaða ánægju og skemmtun menn geta haft af návist við hesta og menn þegar færi gefst frá hinu daglega amstri.
Auk þess heimsækir okkur Sigurbjörn Bárðarson en hann kom einmitt á fyrstu sýninguna.
Miðaverð er kr. 1.200 fyrir 13 ára og eldri en kr. 500 fyrir 12 ára og yngri.
Mjög skemmtileg og spennandi
Smalakeppni er að baki, alls voru skráðir til leiks 70 keppendur. Lið 2 náði
flestum stigum í kvöld eða 36 stigum en fast á hæla þeirra kom lið 3 með 34 stig
og þá lið 1 með 32 stig. Lið 4 náði 16 stigum.
Úrslit urðu
eftirfarandi:
Unglingaflokkur: 1.
Rakel Rún Garðarsdóttir og Stúdent frá Sólheimum I, liði 1 2. Albert
Jóhannsson og Dorit frá Gauksmýri, liði 2 3. Jóhannes Geir Gunnarsson og
Auður frá Grafarkoti, liði 3 4. Stefán Logi Grímsson og Kæla frá Bergsstöðum,
liði 4 5. Rakel Ósk Ólafsdóttir og Rós frá Grafarkoti, liði 1
2. flokkur 1. James B Faulkner og Karítas frá
Lækjamóti, liði 3, 300 stig/tími 37,59 sek 2. Guðrún Ósk Steinbjörnsdóttir og
Óvissa frá Galtanesi, liði 1, 280 stig/tími 41,67 sek 3. Stefán J Grétarsson
og Hóseas, liði 1, 256 stig/tími 41,81 sek 4. Sofia Birgitta Krantz og Snót
frá Bjargshóli, liði 2, 250 stig/tími 43,05 sek 5. Halldór Jón Pálsson og
Lyfting frá Súluvöllum, liði 2, 246 stig/tími 42,71 sek 6. Þorgeir
Jóhannesson og Stínóla frá Áslandi, liði 1, 240 stig/tími 43,77 sek 7. Rúnar
Örn Guðmundsson og Dynjandi frá Húnsstöðum, liði 4, 220 stig/tími 44,89
sek 8. Þórarinn Óli Rafnsson og Funi, liði 1, 196 stig/tími 46,95 stig 9.
Lena Petterson og Sjöfn frá Höfðabakka, liði 1, 188 stig/tími 44,59 sek 10.
Þórólfur Óli Aadnegard og Þokki frá Blönduósi, liði 4, 186 stig/tími 53,77
sek
1. flokkur 1. Ragnar
Stefánsson og Vafi frá Hlíðskógum, liði 4, 286 stig/tími 39,5 sek 2. Elvar
Logi Friðriksson og Hvinur frá Sólheimum, liði 3, 266 stig/tími 40,35 sek 3.
Matthildur Hjálmarsdóttir og Gáta frá Bergsstöðum, liði 2, 256 stig/tími 41,90
sek 4. Pálmi Geir Ríkharðsson og Heimir frá Sigmundarstöðum, liði 2 250
stig/tími 42,71 sek 5. Magnús Á Elíasson og Hera frá Stóru-Ásgeirsá, liði 3
246 stig/tími 42,21 sek 6. Fanney Dögg Indriðadóttir og Eldur frá Sauðadalsá,
liði 3 240 stig/tími 44,89 sek 7. Aðalsteinn Reynisson og Olver frá
Syðri-Völlum, liði 2, 220 stig/tími 47,44 sek 8. Eðvarð Ingi Friðriksson og
Edda frá Þorkelshóli, liði 3, 216 stig/tími 45,67 sek 9. Herdís Einarsdóttir
og Stika frá Grafarkoti, liði 2, 182 stig/tími 53,67 sek 10. Halldór P
Sigurðsson og Von frá Dalvík, liði 1, 172 stig/tími 55,66 sek.
LIÐAKEPPNIN stendur þá þannig eftir 3. mótið:
1.
sæti er Lið 3 með 100,5 stig 2. sæti er Lið 2 með 83,5 stig 3. sæti er Lið
1 með 52,5 stig 4. sæti er Lið 4 með 41,5 stig
Jæja
þá er fyrsta grunnskólamótið búið sem haldið var á Sauðárkróki. Mótið gekk mjög
vel í alla staði og var hin frábærasta skemmtun og stóðu okkar krakkar sig mjög
vel. Viljum við í æskulýðsnefndinni óska öllum knöpunum innilega til hamingju
með frábæran árangur, við erum stollt af ykkur :) Hér eru
úrslitin:
Fegurðarreið 1.-3.bekkur
1 Ingunn Ingólfsdóttir VARMAHL 3.b Hágangur frá Narfastöðum 8,5 2 Hólmar Björn Birgiss AUS 2.b Tangó frá Reykjum 7,5 3 Inga Þórey Þórarinsd HVT Funi frá Fremri Fitjum 8,0 4 Guðmar Freyr Magnúss ÁRS 3.b 8,0 5 Aron Ingi Halldórss AUS 3.b Blakkur frá Sauðárkróki 7,6
Þrígangur 4.-7.bekkur
1 Gunnar Freyr Gestsson VAR 7.b Aþena frá Miðsitju 5,8 2 Jón Ægir Skagfjörð BLÖ 5.b Perla 5,3 og 3-4 inn 3 Helgi Fannar Gestson VAR 4.b Vissa frá Borgarhóli 5,2 4 Rósanna Valdimarsd VAR 7.b Vakning frá Krítarhóli 5,5 5 Helga Rún Jóhannsdóttir HVT 7.b Andrea frá Vatni 5,3
Tölt 4.-7.bekkur
1 Ásdís Ósk Elvarsdóttir VAR 5.b Smáralind frá S-Skörðugili 2 Ragna Vigdís Vésteinsd VAR 6.b Glóa frá Hofstaðaseli 3 Lilja Karen Kjartansd HVT 6.b Fía frá Hólabaki 4 Hákon Ari Grímsson HÚN 7.b Rifa frá Efri Mýrum
Fjórgangur 8.-10.bekkur
1 Rakel Rún Garðarsdóttir HVT 10.b Lander frá Bergstöðum 6,0 2 Lydía Ýr Gunnarsdóttir ÁRS 8.b Tengill frá Hofsósi 5,0 3 Harpa Birgisdóttir hHÚN 10.b Kládíus frá Kollaleiru 5,3 4 Jón Helgi Sigurgeirsson VAR 8.b Náttar frá Reykjavík 5,3 5 Bryndís Rún Baldursd ÁRS 8.b Pels frá Vatnsleysu 4,6
Tölt 8.-10.bekkur
1 Katarína Ingimarsd VAR 8.b Jonny be good f/hala 6,3 2 Steindóra Ólöf Haraldsd ÁRS 9.b Prins frá Garði 6,2 3 Finnur Ingi Sölvason SIGL 9.b Skuggi frá Skíðbakka 6,0 4Agnar Logi Eiríksson BLÖ 10.b Njörður frá Blönduósi 5,3 5 Eydís Anna Kristófersd HVT 8.b Virðing frá N-Þverá 5,2
Smali 4.-7.bekkur
Eftir keppni þegar nánar var farið yfir stig og refsistig kom í ljós að Ingibjörg Lóa stóð efst
1 Ingibjörg Lóa Hjaltadóttir VAR 2 Sverrir Þórarinss VAR 6.b Ylur frá Súlunesi 32,36 og 14 refsistig 3 Rakel Ósk Ólafsdóttir HVT 7.b Rós frá Grafarkoti 35,82 og 14 refsistig 4 Haukur Marían S.Haukss HÚN 7.b Skvísa frá Fremri Fitjum 35,62 og 14 refsistig 5 Vésteinn Karl Vésteinss VAR 4.b Syrpa frá Hofsstaðaseli 36,72 og 14 refsistig 6 Viktoría Eik Elvarsd VAR 4.b Kátína frá S-Skörðugili 7 Anna Herdís Sigurbjartsd HVT 4.b Prins frá Gröf
Skeið 8.-10.bekkur
1 Eydís Anna Kristófersd HVT 8.b Frostrós 2 Steindóra Ólöf Haraldsd ÁRS 9.b Gneisti frá Sauðárkróki 3 Stefán Logi Grímsson HÚN 9.b Kæla frá Bergsstöðum 4 Finnur Ingi Sölvason SIGL 9.b Goði frá Fjalli
Eins
og sjá má frábær árangur hjá krökkunum . Til hamingju
krakkar!!!
Það
verður svo sannarlega gaman að fylgjast með næsta móti og hvetjum við alla til
að koma og styðja krakkana 4. apríl á Hvammstanga.
Í fögru veðri laugardaginn 21. mars fór reið
hópur hestamanna endilangt Svínavatn. Ísinn mjög góður og á miðju
vatni beið hressing fyrir hestana, sem þeir gerðu góð skil. Þá undir
kirkju á Svínavatni var komið lyfti Ægir fararstjóri fleig og þakkaði
góða ferð.
Svínavatnið er talið um 12 km langt og þrátt fyrir hláku
undanfarinna daga var varla nokkurs staðar vatn á ísnum og hann mjög
traustur. Rétt í byrjun ferðar virtust hestar óöruggir og jafnvel sumir
knapar einnig, en mönnum og hestum óx ásmegin eftir því sem lengra út á
vatnið kom.
Sammála voru menn að ferðin hafi verið frábær og mikill áhugi að
endurtaka leikinn síðar. Svínavatnið er mikil vannýtt auðlynd, sem
stendur vonandi til bóta. Það hefur sannað sig sem einn frábærasti
mótsstaður fyrir ísmót og enginn vafi er að fjölmargir almennir
hestamann gætu haft hug á að koma með í skipulagða ferð um vatnið.
Myndir teknar af Magnúsi Ólafssyni og Sigurlaugu Markúsdóttur komnar inná myndaalbúm.
Í gækvöld fór fram hið árlega Stjörnutölt
Léttis í Skautahöllinni á Akureyri. Þetta er í tíunda skipti sem það er
haldið. Mikið var um flotta hesta og var vel mætt, nánast full höll.
Sigurður Sigurðarson og Freyðir fóru á kostum í töltinu og unnu það
nokkuð örugglega.
Gaman er að geta þess að framkvæmdastjóri
Stjörnutölts Kristmundur Stéfánsson var heiðraður fyrir vel unnin störf
í tengslum við mótið en hann hefur séð um það að mestu frá upphafi.
En úrslitin voru eftirfarandi:
Úrslit í tölti:
1 Sigurður Sigurðarson Freyðir frá Hafssteinsstöðum. 8,21 2 Ólafur Magnússon Gáski frá Sveinsstöðum. 7,54 3 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Ösp frá Enni. 7,50 4 Bylgja Gauksdóttir Pipar-Sveinn frá Reykjavík. 7,46 5 Hans Kerúlf Sigur frá Hólabaki. 7,21
Úrslit í stóðhestakeppninni:
1 Friðrik Sveinsson Fengur frá Sauðárkrók 7,00 2 Mette Mannseth. Háttur frá Þúfum 6,88 3 Þorbjörn H Matthiasson. Óskahrafn frá Brún 6,50 4 Pétur Vopni Sigurðsson. Ármann frá Hrafnsstöðum 6,33 5 Baldvin Ari Guðlaugsson. Sindri frá Vallarnesi 6,25
SMALINN er næsta mót liðakeppninnar og verður í Hvammstangahöllinni 20. mars nk. Brautin verður uppi í Hvammstangahöllinni allan miðvikudaginn. Skráningu skal lokið að miðnætti þriðjudagsins 17. mars. Skráning hjá Kollu á emeil: [email protected] Fram þarf að koma nafn knapa, hestur, ætt, litur og aldur. Skráningargjald 1.000.- Hægt er að greiða skráningargjaldið fyrir mót og leggja inn á 1105-15-200343 kt. 550180-0499. Brautin er eins og myndin hér að neðan sýnir.
Keppt verður í Unglingaflokki, 2. flokki og 1. flokki. Stig í Unglingaflokki eru 3 -2-1-1-1, stig í 2. flokki eru 10-9-8-7-6-5-4-3-2-1 og stig í 1. flokki eru 10-9-8-7-6-5-4-3-2-1. Í 1. og 2. flokki fá 10 hestar að fara brautina aftur en 5 í Unglingaflokki.
Mótanefnd hafa borist margar skemmtilegar spurningar um mótið og ákváðum við að skella þeim á netið:
Mun Konni í Böðvarshólum mæta með hundinn?
Með hvaða 1. verðlauna stóðhest mun Tryggvi Björns mæta með?
Mætir A-Hún í búning?
Er www.snobb.is síðan komin í gagnið, hvað er lykilorðið?
Mætir Haddý aftur í reiðbuxum?
Er Hjördís ennþá öfundsjúk út í flottu Ástundspeysurnar?
Mætir Jói á Bessastöðum á réttum tíma?
Hvaða 1. verðlauna meri mun Tryggvi lána Loga?
Mun Sigrún mæta með límband fyrir munninn?
Kemur Dóri Fúsa í hjólastól með þyrlu?
Kemur Höddi í lögreglufylgd?
Hvað gerir Víðidalsliðið núna? Hverjir koma og keppa fyrir þá? Amma hans Tryggva? (www.bitur.is)
Nagar Raggi puttann á meðan Kolla keppir?
Er Gunni ekki búinn að ná sér eftir höfuðhöggið? er hann kannski bara alltaf svona?