Færslur: 2011 Janúar

30.01.2011 22:00

Sparisjóðs-liðakeppnin - fjórgangur



Þá fer að styttast í fyrsta mót Sparisjóðs-liðakeppninnar en það verður 11. febrúar nk og verður að vera búið að skrá á miðnætti þriðjudagsins 8. febrúar. Skráning er hjá Kollu á mail:
[email protected]. Keppt verður í fjórgangi í 1. flokki, 2. flokki, 3. flokki og flokki 17. ára og yngri (fædd 1994 og seinna) Það sem koma þarf fram er knapi, lið, hestur, IS númer og upp á hvora hönd á að ríða. Það verða  tveir inn á í einu og er prógrammið í forkeppni, hægt tölt -  fegurðartölt - fet - brokk - stökk. En úrslit verða riðin eins og venjulega, hægt tölt - brokk - fet - stökk - fegurðartölt.

Knapar verða að vera í sama liðinu allt tímabilið, þ.e. bannað að skipta um lið á miðju tímabili. Einnig verður hver og einn knapi að velja sér hvort hann ætlar að keppa í 1. 2. eða 3. flokki í upphafi tímabils og má ekki fara á milli flokka á tímabilinu.

Hver keppandi má keppa á fleiri en einum hesti í hverri grein, en ef keppandi kemst með tvo hesta í úrslit verður hann að velja á milli þeirra og aðeins keppa á öðrum í úrslitum. Ekki hægt að fá aukaknapa til að ríða úrslit fyrir sig. Nánar um reglur keppninnar má sjá hér.

Skráningargjaldið er 1.500 fyrir fullorðna og 500 fyrir unglinga 17 ára og yngri og verður að greiða inn á reikning 1105-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst.

Aðgangseyrir er 1.000 en frítt fyrir 12 ára og yngri.


Mótanefnd liðakeppninnar

28.01.2011 11:12

Reiðnámskeiðin hjá krökkunum byrjuð


Þá eru öll námskeið vetrarins komin af stað en hóparnir mættu í sína tíma á miðvikudag og fimmtudag. Ekkert nema skemmtilegt hjá þeim.
Í miðvikudagshópnum eru bara stelpur og þær hafa allar verið marga vetur á námskeiðum í Reiðhöllinni.
Hér eru Lilja, Alma og Una ......



og á fimmtudag komu krakkarnir sem ekki eru búin að vera á jafnmörgum námskeiðum og hinn hópurinn enda hafa þau aðstoðarmenn sér til halds og trausts.



27.01.2011 08:18

Járninganámskeiðið


Járninganámskeiðið verður 4. og 5. febrúar.

Það byrjar með bóklegum tíma
í Reiðhöllinni, kaffistofu, kl. 20.00
föstudagskvöld 4. feb.

Verklegir tímar byrja kl. 8.00
á laugardagsmorgunn og verða
þeir í hesthúsinu í Hnjúkahlíð.

  Skráning og nánari upplýsingar gefur Hólmar Hákon í sími 6956381.
Það væri gott ef þeir sem voru búnir að skrá sig
staðfesti  þátttöku sína við Hólmar,
láti hann einnig vita ef þeir komast ekki þess helgi. 


26.01.2011 10:22

Meistaradeild Norðurlands (KS deildin) 2011


Bjarni Jónasson og Komma frá Garði.

Það stefnir í hörku úrtöku  miðvikudaginn 26. janúar.  11 knapar eru skráðir til leiks, og þar eru þekkt nöfn úr keppnisgeiranum...

meðal þátttakenda eins og má sjá á ráslistanum. Það er alla vega  ljóst,  að úrtakan fyrir þetta ár er sennilega sú sterkasta frá upphafi KS-deildarinnar.                                                                                    Keppt er í 4-gangi og 5-gangi og er það samanlagður árangur úr þessum greinum sem telur til stiga í úrtökunni.
Hvetjum við fólk til að koma og horfa á spennandi keppni um þau sex lausu sæti í KS-deildinni 2011. Úrtakan byrjar kl:20:00 ( húsið opnar kl:19:30) aðgangseyrir er 1000.- kr. frítt fyrir 12 ára og yngri.

Ráslisti 4-gangur.
1.    Magnús Elíasson - Bliki frá Stóru - Ásgeirsá.
2.    Hörður Óli Sæmundarson - Hafrún frá Vatnsleysu.
3.    Jón Herkovic - Töfrandi frá Árgerði.
4.    Ingólfur Pálmason - Höfði frá Sauðárkróki.
5.    Sigurður Rúnar Pálsson - Gáski frá Pulu.
6.    Riikka Anniina - Gnótt frá Grund.
7.    Árni Björn Pálsson - Fura frá Enni.
8.    Baldvin Ari Guðlaugsson - Logar frá Möðruvöllum.
9.    Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir - Kolgerður frá Vestri-Leyrárgörðum.
10.    Guðmundur Þór Elíasson - Fáni frá Efri-Lækjardal.
11.    Eyjólfur Þorsteinsson - Hlekkur frá Þingnesi.
Ráslisti 5-gangur.
1.    Jón Herkovic - Formúla frá Vatnsleysu.
2.    Sigurður Rúnar Pálsson - Glettingur frá Steinnesi.
3.    Baldvin Ari Guðlaugsson - Frami frá Efri-Rauðalæk.
4.    Riikka Anniina - Styrnir frá Neðri-Vindheimum.
5.    Guðmundur Þór Elíasson - Súper-Stjarni frá Stóru-Ásgeirsá.
6.    Hörður Óli Sæmundarson - Hreinn frá Vatnsleysu.
7.    Magnús Elíasson - Daði frá Stóru-Ásgeirsá.
8.    Árni Björn Pálsson - Ofsi frá Stóru-Ásgeirsá.
9.    Eyjólfur Þorsteinsson - Ögri frá Baldurshaga.
10.    Hallfríður Sigurbjörg Óladóttir - Rán frá Skefilsstöðum.
11.    Ingólfur Pálmason - Tindur frá Miðsitju.
Við minnum knapana sem eru skráðir í úrtökuna á knapafundinn sem verður í Tjarnarbæ kl:19:00 á keppnisdag.


25.01.2011 08:16

Happdrætti Freyfaxa


Hestamannafélagið Freyfaxi var að fara af stað með stóðhestahappdrætti,
það er opið fyrir alla og er slóðin á síðuna: http://freyfaxi.123.is/page/30608/

21.01.2011 12:25

10. hópurinn


Í gær mætti 10. hópurinn í knapamerkjatímann sinn en það er Elin Petronella Hannula sem kennir.
Hér eru Gerður Beta og Christina mættar með hestana sína.....



og Harpa með Gamminn sinn.


Það eru 24 fullorðnir sem stunda nám í knapamerkjum 1 og 2 og 19 krakkar í kn 1, 2 og 3. Knapamerki 3 er tekið á tveimur vetrum þar sem það er mikið nám og betra að því sé dreift  svo krakkarnir hafi líka tíma í að taka þátt í því sem er á döfinni hjá þeim.

Reiðnámskeið barna, yngri og eldri, byrja í næstu viku. Eldri börnin mæta á miðvikudag kl. 19 og yngri mæta á fimmtudag kl. 17. Foreldrum verður sendur póstur þar um og ef einhver er ekki búinn að skrá sig þá er um að gera að hafa samband á netfang Neista.


20.01.2011 13:19

Járninganámskeiði frestað


Járninganámskeiðinu

sem vera átti 21. og 22. janúar
er frestað um óákveðinn tíma.


18.01.2011 21:02

Meira af knapamerkjum


Enn eru fleiri hópar að byrja námskeiðin í knapamerkjunum.
Hópurinn sem komst ekki  á mánudag fyrir viku vegna veðurs mætti hress og kátur í gær í tíma hjá Sibbu
.

Hér mætir Sauðanesbóndinn með hann Mósa sinn....



Í dag voru tímar hjá Barböru Dittmar en hún kennir krökkunum í
knapamerki 1 (annar hópurinn) og knapamerki 2.


Þær Þórunn, Ása, Kristín og Guðrún mættar hjá Barböru í knapamerki 1....



og þau Jón Ægir og Harpa Hrönn í knapamerki 2.




18.01.2011 15:35

Sýnikennsla í Þytsheimum

Hestamenn athugið



Sýnikennsla - Sýnikennsla - Sýnikennsla



Reiðkennararnir Ísólfur Líndal og Guðmar Þór
ásamt reiðkennaraefninu James Faulkner
verða með sýnikennslu í reiðhöllinni á Hvammstanga


fimmtudaginn 27.janúar kl. 20:30.


Fjallað verður m.a um notkun reiðhalla
og kerfisbundna uppbyggingu reiðhestsins.


Aðgangseyrir 1000 kr (enginn posi á staðnum)



Félag tamningamanna og fræðslunefnd Þyts

18.01.2011 15:25

Reiðnámskeið og sýnikennsla í Reiðhöllinni Svaðastaðir


Reiðnámskeið og sýnikennsla
í Reiðhöllinni Svaðastaðir


Reiðnámskeið og sýnikennsla verður haldið helgina 21.-23.janúar.
Kennari verður Guðmar Þór Pétursson.



Sýnikennsla á föstudag, 21.jan, kl 20 Aðgangseyrir
1000 kr. Allir velkomnir

Kennt verður í þriggja manna hópum, klukkustund í senn.
Einnig er hægt að panta einkatíma.
Skráning á námskeiðið er hjá Brynjólfi í síma 865-0946

Nú er gott að skella sér á námskeið í byrjun nýs tímabils
og taka svo veturinn með trompi.

Nýárskveðjur frá Riddurum Norðursins.


17.01.2011 20:51

KS-deildin


Meistaradeild Norðurlands í hestaíþróttum, KS-deildin, verður haldin í fjórða sinn í vetur. Mótaröðin fer að venju fram í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkóki.26. janúar nk verður úrtaka en sex sæti eru laus í deildina. Þeir sem ætla í úrtöku er bent á að skrá sig nú þegar á netfangið: [email protected]. Allra síðasti skráningardagur er 23.jan. Nánari  upplýsingar í síma : 842-5240

Mótadagar verða:
26.jan: Úrtaka fyrir þau 6.sæti sem laus eru.  Síðasti skráningardagur 23.janúar
16.feb: Fjórgangur
2.mars: Fimmgangur
16.mars: Tölt
30.mars: Smali og skeið.

Kaupfélag Skagfirðinga mun eins og áður, vera styrktaraðili Meistaradeildar Norðurlands.

14.01.2011 21:29

Lið 4 - allir með :o)


Eins og sjá má hér á heimasíðunni og heimasíðu Þyts  þá er Húnvetnska liðakeppnin eða Sparisjóðs-liðakeppnin, eins og hún heitir núna, rétt handan við hornið en 1. mót vetrarins er 11. febrúar í Þytsheimum.
 
Liðsstjórar Austur Húnvetnska liðsins, Lið 4, hvetja alla þá sem áhuga hafa á að vera með á einn eða annan hátt í
Liði 4,  þ.e. hvort heldur sem keppandi, klappstýra eða rétta hjálparhönd við hvað sem er að hafa samband við Rúnar í síma 6953363 eða á netfang [email protected] fyrir frekari upplýsingar.

Með von um góða þátttöku

Liðsstjórar liðs 4


14.01.2011 20:20

Sparisjóðs-liðakeppnin

Mótanefnd Húnvetnsku liðakeppninnar ásamt liðsstjórum hafa farið yfir reglur keppninnar og hér fyrir neðan má sjá niðurstöðuna sem við vorum sammála um og þær breytingar sem við gerðum. Framundan er spennandi keppni og styttist í fyrsta mót sem verður 11. febrúar í Þytsheimum. Breytingar frá því í fyrra eru þær að 3. flokk verður bætt við ef næg þátttaka fæst og b-úrslit í unglingaflokki tekin út í staðin. Þar sem tími gefst ekki fyrir fleiri úrslit á einu kvöldi. Einnig bætist skeið við og verður það með smalanum á Blönduósi.

Spkef sparisjóður verður aðalstyrktaraðili keppninnar og mun liðakeppnin því fá nýtt nafn, Sparisjóðs-liðakeppnin.

Ný regla fyrir þetta ár er sú að á lokamóti mótaraðarinnar má ekki bætast nýr aðili við liðið nema hann sé í Neista eða Þyt.

Varamaður mótanefndarinnar, Þórdís Helga Benediktsdóttir, kemur inn með okkur í vetur í starfið þar sem Fanney Dögg er í námi á Hólum.

Mót Sparisjóðs-liðakeppninnar verða:
11. febrúar - Fjórgangur
26. febrúar - Smali og skeið á Blönduósi (ath laugardagur)
11. mars - Fimmgangur
8. apríl - Tölt

Reglur keppninnar árið 2011:

Liðin skiptast þannig,
Lið 1: Hvammstangi, Miðfjörður og Hrútafjörður
Lið 2: Vatnsnes, Vesturhóp og Línakradalur (Gamli Kirkjuhvammshr. og Þverárhreppur)
Lið 3: Víðidalur og Fitjárdalur
Lið 4: Austur-Húnavatnssýsla
Skiptingin er aðeins til viðmiðunar fyrir fólk en ekki bundin við lögheimili.

1. flokkur, ef keppendur eru 16 eða fleiri eru B-úrslit riðin. Fjórir efstu eru öruggir í A-úrslit, sá fimmti þarf að vinna sig upp í úrslitin.

Stig í A-úrslitum eru gefin þannig:
1. sæti - 12 stig
2. sæti - 10 stig
3. sæti - 9 stig
4. sæti - 8 stig
5. sæti - 7 stig

Stig í B-úrslitum eru gefin þannig:
6.sæti - 5 stig
7.sæti - 4 stig
8.sæti - 3 stig
9.sæti - 2 stig

Það par sem vinnur sig upp úr B-úrslitum fær engin stig í B-úrslitunum en á möguleika á fleiri stigum í A-úrslitum.

2. flokkur, sömu reglur í sambandi við A- og B-úrslit. Stigagjöf er þó öðruvísi.
Stig í A-úrslitum eru gefin þannig:
1. sæti - 8 stig
2. sæti - 7 stig
3. sæti - 6 stig
4. sæti - 5 stig
5. sæti - 4 stig

Stig í B-úrslitum eru gefin þannig:
6.sæti - 3 stig
7.sæti - 2 stig
8.sæti - 1 stig
9.sæti - 1 stig

Það par sem vinnur sig upp úr B-úrslitum fær engin stig í B-úrslitunum en á möguleika á fleiri stigum í A-úrslitum.

3. flokkur, aðeins riðin A-úrslit. Stig í úrslitum eru gefin þannig:

1. sæti - 3 stig

2. sæti - 2 stig

3. sæti - 1 stig

4. sæti - 1 stig

5. sæti - 1 stig


Barna- og unglingaflokkar (17 ára og yngri, fædd 1994 og seinna) aðeins riðin A-úrslit.
1.sæti - 5 stig
2.sæti - 4 stig
3.sæti - 3 stig
4.sæti - 2 stig
5.sæti - 1 stig

Skeið:

Þessi keppni gefur einungis stig í liðakeppninni en ekki í einstaklingskeppninni. Aðeins keppt í einum flokki og stig eftirfarandi:

1.sæti - 10 stig
2.sæti - 8 stig
3.sæti - 7 stig
4.sæti - 6 stig
5.sæti - 5 stig
6.sæti - 4 stig
7.sæti - 3 stig
8.sæti - 2 stig
9.sæti - 1 stig

Knapar verða að vera í sama liðinu allt tímabilið, þ.e. bannað að skipta um lið á miðju tímabili.
Einnig verður hver og einn knapi að velja sér hvort hann ætlar að keppa í 1. 2. eða 3. flokki í upphafi tímabils og má ekki fara á milli flokka á tímabilinu.

Hver keppandi má keppa á fleiri en einum hesti í hverri grein, en ef keppandi kemst með tvo hesta í úrslit verður hann að velja á milli þeirra og aðeins keppa á öðrum í úrslitum. Ekki hægt að fá aukaknapa til að ríða úrslit fyrir sig.

Skráningargjöld verður að greiða inn á reikning 1105-15-200343 kt. 550180-0499 áður en mót hefst.


Mótanefnd liðakeppninnar

Þytur


13.01.2011 20:36

Knapamerki 1


Áfram halda nýjir hópar að mæta í Reiðhöllina á námskeið í knapamerkjunum.
Í kvöld mættu krakkarnir í fyrri hópnum í knapamerki 1, þau Hreinn, Leon, Magnea, Páll og Sigurður Bjarni.  Kennarinn þeirra er Elin Petronella Hannula.




13.01.2011 13:29

Knapamerki 3


Knapamerki 3 byrjaði í gær þegar krakkarnir mættu hjá Sibbu í tveim hópum. Mjög spennandi :)

Hér eru þau sem eru að byrja í kn 3,
þau Hrafnhildur, Alexandra og Sigurgeir ásamt Sibbu
....


og þau sem byrjuðu í fyrra, þau Friðrún, Haukur og Hákon ásamt Sibbu.
Á myndina vantar Höllu Steinunni.




Flettingar í dag: 403
Gestir í dag: 15
Flettingar í gær: 709
Gestir í gær: 26
Samtals flettingar: 409630
Samtals gestir: 49742
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 09:38:59

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere