Færslur: 2011 Júní

29.06.2011 09:53

Gáski og Óli í B-úrslit


Frábær árangur hjá Gáska og Óla í gær þar sem þeir unnu sæti í B-úrslitum á Landsmóti, urðu í 11. sæti í milliriðlum.
Þeir munu keppa á föstudag og fylgjust við að sjálfsögðu með því emoticon



Á félagsmóti Neista 2009


27.06.2011 19:59

Óli og Gáski í milliriðil


Smá Landsmótsfréttir.....

Keppt var í forkeppni í B-flokki í dag og komust Gáski og Ólafur Magnússon í milliriðil
.

Forkeppni í barna- og unglingaflokki var á sunnudag en í dag, mánudag var ungmennaflokkur og B-flokkur.

Hluti Landsmótsfara mætti í Skagfjörðinn í fallegu veðri á laugardag til að nýta æfingatímann sem Neista var úthlutað og gera klárt fyrir sunnudaginn.




Skemmtilegur knapafundur var kl. 10 á sunnudagsmorgni þar sem Sigurbjörn Bárðarson sagði krökkunum að þá þegar væru þau búin að ná ákveðnum sigri með því að vera komin á Landsmót, nú væri þau komin þangað og þá væri bara að hafa gaman af því að vera í brautinni, gera sitt besta með bros á vör og það gerðu krakkarnir frá Neista svo sannarlega og voru flottir fulltrúar félagsins.


Haukur Marian og Viðar og Sigurgeir og Hátíð


           
                Sigurður Bjarni og Þokki                                   Lilja Maria og Hamur


Keppendur stóðu sig frábærlega og óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn.
(ekki náðist mynd af Agnari, Óla og Ragga þar sem þeir kepptu í dag, mánudag og myndasmiður farinn heim)
.


Nokkrar myndir í albúmi.


27.06.2011 19:54

Úrslit landsmóts UMFÍ 50 +


Fyrsta landsmót UMFÍ 50 + í hestaíþróttum var sl. föstudag. Mótið var skemmtilegt og margir flottir knapar tóku þátt í mótinu. Það var greinilegt að knapar í þessum aldursflokki gefa yngri knöpum ekkert eftir sem sést vel á einkunnum efstu hrossa.

Fjórgangur

úrslit
1 Þórir Ísólfsson / Kvaran frá Lækjamóti 6,27
2 Sverrir Sigurðsson / Arfur frá Höfðabakka 5,83
3 Halldór P. Sigurðsson / Fálki frá Bessastöðum 5,70
4 Þorgeir Jóhannesson / Bassi frá Áslandi 5,60
5 Magnús Ólafsson / Dynur frá Sveinsstöðum 5,57


Fimmgangur

úrslit

1 Sverrir Sigurðsson / Rammur frá Höfðabakka 6,64
2 Þórir Ísólfsson / Návist frá Lækjamóti 6,26
3 Herdís Einarsdóttir / Kasper frá Grafarkoti 6,14
4 Elías Guðmundsson / Frenja frá Vatni 4,60
5 Þorgeir Jóhannesson / Sunna frá Áslandi 3,95

Tölt

úrslit

1 Þórir Ísólfsson / Kvaran frá Lækjamóti 6,61
2 Herdís Einarsdóttir / Kasper frá Grafarkoti 6,56
3 Halldór P. Sigurðsson / Gósi frá Miðhópi 6,44
4 Sverrir Sigurðsson / Vág frá Höfðabakka 6,06
5 Magnús Ólafsson / Gleði frá Sveinsstöðum 5,78


Þytur

21.06.2011 19:00

Vaktir hestamannafélaga á Landsmóti 2011


Helstu atriði varðandi vaktir á Landsmóti Hestamanna:

  • Viðmiðið eru 10-20 vaktir á hestamannafélag, þó í samhengi við stærð félags og undirtektir félagsmanna. Ef áhugi er á fleiru vöktum er alveg sjálfsagt að skoða það.
  • Það er ekki verra að fólk taki fleiri en eina vakt en það er hinsvegar ekki skilyrði.
  • Vaktirnar eru á bilinu 6-10 klst.
  • Styrkurinn er 1.500kr fyrir hverja unna klukkustund.
  • Hestamannafélögin fá styrkinn fyrir vinnu félagsmanna greiddan til sín. Félögin halda svo annaðhvort styrkinum fyrir sig eða greiða einstaklingunum fyrir þeirra vinnu eftir mót.
  • Miðað er við að starfsmenn hafi náð 18 ára aldri.
  • Þau störf sem um ræðir eru meðal annars:       
    • Stóðhesthús
    • Móttaka hrossa
    • Skrifstofa
    • Upplýsingamiðstöð
    • Hliðvarsla
    • Fótaskoðun
    • Kaffivaktin
    • Ýmis vinna á svæði

 

Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Hugrúnu Ósk Ólafsdóttur í gegnum netfangið [email protected]. Fram þarf að koma frá hvaða hestamannafélagi viðkomandi kemur.


21.06.2011 00:07

Æfing fyrir landsmót


Stemming er hjá krökkunum fyrir Landsmóti sem byrjar á sunnudaginn með forkeppni í unglingaflokki og síðan baranaflokki. Í kvöld örkuðu þau ásamt foreldri og Óla Magg,  sem er endalaust tilbúinn að snúast í kringum þau, á Vindheimamela að æfa fyrir keppnina. Virkilega skemmtileg ferð og gott fyrir þau að prófa annan völl en þann sem þau eru vön á Blönduósi.
Á Landsmót fyrir Neista fara:



Lilja Maria og Hamur, Agnar og Njörður, Sigurður Bjarni og Þokki, Sigurgeir Njáll og Hátíð og Haukur Marian og Viðar. Óli er með þeim á myndinni.

Í B-flokk fara Óli og Gáski og Raggi og Stikla en í A-flokk fara Óli og Ódeseifur og Raggi og Maur en þessir kappar þurfa nú lítið að æfa sig.

Afskaplega fallegt veður var á Melunum en kalt. Vonandi fer að hlýna.







Nokkrar myndir í albúmi.

20.06.2011 08:47

Kvennareið 2011


Hin árlega kvennareið verður farin laugardaginn 25. júní næstkomandi. Farið verður frá Reiðhöllinni Arnargerði klukkan 16.00. Góð og skemmtileg reiðleið fyrir alla sem endar svo í grilli og gríni í Reiðhöllinni. Þemað þetta árið er rautt svo ekki er verra að punta sig og sína í tilefni dagsins.

Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst, það léttir allan undirbúning.

Nánari upplýsingar og skráning:
Guðrún Kjartansd. s:894-7543
Guðrún Blöndal s:895-0595

Frá reiðhöllinni liggur leið,
austur og yfir Hnjúka.
Þessi fagra kvennareið,
í höllinni mun ljúka.

Fagur hópur, kvennafans
ríður núna saman.
Glæstar meyjar, gleði og glans,
djöfull verður gaman.
J.Ö.S.

18.06.2011 09:56

17. júní


Eins og undanfarin ár hafði hestamannafélagið Neisti umsjón með 17. júní hátíðarhöldunum á Blönduósi en það viðraði ekki beint vel á hátíðargesti svo hluti af dagskránni var flutt inn í bíósalinn í félagsheimilinu.


Dagskráin var með hefðbundnum hætti, börnum boðið á hestbak uppí reiðhöll.


Dorgveiðikeppni var út á bryggju þar sem Beggi Páls réði ríkjum. Það veiddist einn fiskur ....


Angela "blés" í blöðrur eins og fyrri ár....




og skrúðganga var frá SAH afurðum að Bæjartorgi þar sem hátíðardagskrá fór fram, þ.e. hluti hennar inni þar sem hellirigndi þegar skrúðganga byrjaði.

Erla Hrönn Harðardóttir var fjallkonan í ár.


Þar sem ekki náðist að koma öllum græjunum inn með svo skömmum tíma varð hljómsveitin, Svanur, Gutti, Aggi og Anna Sigga að spila úti en þau fluttu nokkur skemmtileg lög. 



Og eins og alltaf kom frábært fólk í eldhúsið. Jón Árni tór sig vel út við vöffludeigið og Áslaug að baka það emoticon



Magnús Ólafsson bauð uppá útsýnisflug og fór hann margar ferðir um loftin blá.

 

Stjórn Neista þakkar öllum kærlega fyrir hjálpina, án ykkar væri þetta ekki framkvæmanlegt. Einning þökkum við þeim sem styrktu okkur á einn eða annan hátt kærlega fyrir og öllum sem komu á hátíðahöldin og í kaffið kærlega fyrir komuna.       

15.06.2011 20:28

Minnum á Landsmót UMFÍ 50+





Landsmótið verður 24. - 26. júní eins og sést hér að ofan. Hestaíþróttirnar verða á föstudeginum 24. júní. Nánar um dagskrá mótsins má sjá hér. Keppt verður í fjórgangi, fimmgangi og tölti ef næg þátttaka verður. Við skráningu þarf að koma fram kennitala knapa, IS númer hests og í hvaða grein á að keppa.
Hvetjum við Neistafélaga til að taka þátt. Þeir sem hafa áhuga á að vera með eru beðnir um að senda Ingu Maríu póst á [email protected], sem fyrst. USAH borgar skráningargjöldin.

Slóðin inn á heimasíðu mótsins er: http://umfi.is/umfi09/50plus/

14.06.2011 21:00

Ennþá opið fyrir umsóknir í Reiðmanninn!!!


Fjölmargar umsóknir hafa borist í Reiðmanninn sem hefst næstkomandi haust, þó þeim sé misskipt á milli staða sem auglýstir hafa verið, þ.e. Hvammstanga, Hellu og í nágrenni höfuðborgarsvæðisins.

Þar sem fólk hefur verði nokkuð upptekið á úrtökumótum og hrossastússi, höfum við ákveðið að framlengja ögn umsóknarfrestinum í Reiðmanninn. Ágætt er að miða við að póstleggja umsóknina 16. júní. Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar eru á vefnum www.lbhi.is/namskeid undir Reiðmaðurinn í vinstri stiku. Endilega vísið áhugafólki og félögum á þetta, og komið á framfæri þessari seinkunn á umsóknarfresti.

Þeir sem nú þegar hafa sótt um í Reiðmanninn, mega gera ráð fyrir því að fá svör um inngöngu fyrir miðjan júlí ef allt gengur eftir.


Endurmenntun
Landbúnaðarháskóla Íslands

13.06.2011 20:24

Úrslit félagsmóts Neista


Félagsmót Neista var haldið á Blönduósvelli í dag og tókst með ágætum. Veðrið var "ótrúlega" gott, ekki rok, svolítið svalt en þurrt að mestu.
Þökkum við öllum þeim sem að því stóðu sem og keppendum og áhorfendum kærlega fyrir daginn.

Úrslit urðu þessi:


B-flokkur


1. Gáski frá Sveinsstöðum og Ólafur Magnússon  8,54 / 8,69
2. Freyðir frá Leysingjastöðum II og Ísólfur Líndal Þórisson  8,28 / 8,46
3. Fáni frá Lækjardal og Guðmundur Þór Elíasson  8,29  /  8,37
4. Öskubuska frá Litladal og Finnur Bessi Svavarsson  8,19  / 8,16
5. Stikla frá Efri-Mýrum og Ragnar Stefánsson  8,32  /  0


Ungmennaflokkur



1. Agnar Logi Eiríksson og Njörður frá Blönduósi  8,19  / 8,30
2. Elín Hulda Harðardóttir og Móheiður frá Helguhvammi II  7,90 / 7,99
3. Harpa Birgisdóttir og Kládíus frá Kollaleiru  8,03  / 7,94


Unglingaflokkur


1. Sigurgeir Njáll Bergþórsson og Hátíð frá Blönduósi  8,12  / 8,48
2. Friðrún Fanný Guðmundsdóttir og Demantur frá Blönduósi  7,84  / 7,96
3. Haukur marian Suska og Viðar frá Hvammi 2  7,92  /  7,95
4  Hákon Ari Grímsson og Hnakkur frá Reykjum  7,88  / 7,77
5. Stefán Logi Grímsson og Gyðja frá Reykjum  7,72  / 7,56


Barnaflokkur


1. Sigurður Bjarni Aadnegard og Þokki frá Blönduósi  7,96 / 8,32
2. Lilja Maria Suska og Hamur frá Hamrahlíð  8,27  / 8,28
3. Ásdís Brynja Jónsdóttir og Ör frá Hvammi   7,55 / 8,12
4. Lara margrét Jónsdóttir og Eyvör frá Eyri  7,29  / 8,03
5. Sólrún Tinna Grímsdóttir og Djarfur frá Hnjúki  7,68  / 7,96


Tölt


1. Sigurgeir Njáll Bergþórsson og Hátíð frá Blönduósi  6,18  / 6,81
2. Guðmundur Þór Elíasson og Fáni frá Lækjardal  6,14 / 6,34
3. Ólafur  Magnússon og Knár frá Steinnesi  5,50  / 6,17
4. Christine Mai og Ölur frá Þingeyrum  5,74  / 5,90
5. Hörður Ríkharðsson og Sveindís frá Blönduósi  4,54  / 5,20


A-flokkur


1. Maur frá Fornhaga II og Ragnar Stefánsson  8,32  / 8,36
2. Heilladís frá Sveinsstöðum og Ólafur Magnússon 8,11 / 8,29
3. Gáta frá Flögu og Valur Valsson  7,80 /  7,81
4. Móalingur frá Brennigerði og Helgi Gíslason  7,42 / 7,47  (þeir kepptu sem gestir)



Par mótsins, valið af dómurum, voru Sigurgeir Njáll Bergþórsson og Hátíð frá Blönduósi, virkilega flott par þar á ferð.

 



12.06.2011 21:28

Ráslistar

Dagskrá félagsmóts Neista mánudaginn 13. júní hefst
kl. 10.00
á forkeppni

B-flokkur
Ungmenni
Unglingar
Börn
Pollar

hádegishlé verður um kl. 13  og verður í  uþb. klukkutíma

Tölt
A-flokkur


Úrslit verða strax eftir forkeppni í sömu röð.

Ráslistar

B-flokkur

1. Ólafur og Knár
2. Hörður og Skíma
3. Ísólfur og Freyðir
4. Guðmundur og Kjarkur
5. Þóður og Stikla
6. Ragnar og Stikla
7. Finnur og Öskubuska
8. Ólafur og Kasper
9. Helga og Fylkir
10. Eline og Hugmynd
11. Guðmundur og Fáni
12. Christine og Ölur
13. Hörður og Sveindís
14. Jón og Hróður
15. Ólafur og Gáski


Ungmennaflokkur

1. Harpa og Dynur
2. Elín og Móheiður
3. Karen og Bylta
4. Agnar og Njörður
5. Harpa og Kládíus

Unglingaflokkur

1. Friðrún og Gleði
2. Stefán og Gyðja
3. Haukur og Viðar
4. Sigurgeir og Hátíð
5. Friðrún og Demantur
6. Hrafnhildur og Óður
7. Stefán og Nökkvi
8. Haukur og Hamur
9. Friðrún og Eljar

Barnaflokkur

1. Lilja og Þruma
2. Lara og Eyvör
3. Sólrún og Djarfur
4. Ásdís og Ör
5. Sigurður og Þokki
6. Sólrún og Perla
7. Lilja og Ívar

Pollaflokkur

1. Bjartmar og Fagrajörp
2. Ásdís og Gáta
3. Inga og Neisti


Tölt

1. Ragnar og Stikla
2. Guðmundur og Fáni
3. Ólafur og Knár
4. Elín og Móheiður
5. Hrafnhildur og Óður
6. Sigurður Bjarni og Þokki
7. Hörður og Sveindís
8. Barbara og Vordís
9. Sigurgeir og Hátíð
10. Christina og Ölur
11. Ragnar og Maur
12. Guðmundur og Jörð
13. Ólafur og Hrappur


A-flokkur

1. Ólafur og Heilladís
2. Helgi Páll og Móalingur
3. Valur og Gáta
4. Haukur Marian og Tinna
5. Christine og Von
6. Ragnar og Maur
7. Ólafur og Ódeseifur



11.06.2011 12:55

Völlurinn lokaðuður .....


Ekki verður hægt að æfa á vellinum á morgun
sunnudag eftir kl. 18.00
þar sem verið er að gera hann kláran fyrir mótið á mánudag.

10.06.2011 23:29

Dagskrá félagsmóts Neista


Dagskrá félagsmóts Neista mánudaginn 13. júní hefst

kl. 10.00
á forkeppni

B-flokkur
Ungmenni
Unglingar
Börn
Pollar

hádegishlé í klukkutíma

Tölt
A-flokkur


Úrslit verða strax eftir forkeppni í sömu röð.

10.06.2011 15:11

Kvennareið 2011


Hin árlega kvennareið verður farin Laugardaginn 25 Júní.
Konur takið daginn frá, nánar auglýst síðar.

Nefndin

05.06.2011 21:23

Félagsmót Neista og úrtaka fyrir landsmót


Félagsmót Neista og
úrtaka fyrir Landsmót

verður haldið á Blönduósvelli
mánudaginn 13. júní  kl. 10.00
.


Neisti á rétt á að senda 2 hesta til keppni á Landsmót í hverjum flokki (ekki pollaflokkur). 

Keppt verður í  tölti opinn flokkur, A og B flokki gæðinga, flokki polla, barna, unglinga og ungmenna.
Ef ekki er næg þátttaka í einhverri keppnisgrein áskilur mótanefnd sér rétt til að fella niður þá grein. 

Skráningar á mótið skulu berast á netfangið
[email protected]  fyrir kl. 21.00 fimmtudagskvöldið 9. júní.

Skráningargjöld verða 2.000 kr fyrir fyrstu skráningu, 1.500 fyrir aðra skráningu og 1.000 kr eftir það. Börn og unglingar borga 800 kr.

Við skráningu þarf að koma fram IS-númer hests, kennitala knapa og keppnisgrein.

Skráningargjald  leggist inn á reikningsnúmer 0307-26-055624, kt. 480269-7139  sama dag og skráð er og þar þarf að koma fram fyrir hvaða hesta er verið að borga og senda kvittun á áðurnefnt netfang.  

Ath.
Þar sem dómarar eru ekki allir íþróttadómarar er töltkeppnin ekki lögleg til stigasöfnunar til Landsmóts.


Dagskrá auglýst síðar

Mótanefnd

Flettingar í dag: 828
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 924
Gestir í gær: 57
Samtals flettingar: 426430
Samtals gestir: 50904
Tölur uppfærðar: 20.4.2024 17:28:45

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere