Færslur: 2013 Janúar

30.01.2013 21:30

Gaman að byrja á reiðnámskeiði

Höllin fylltist í dag af börnum, hestum og foreldrum en ekkert er eins skemmtilegt og þegar litlu krakkarnir mæta á námskeið. Það er svo gaman hjá þeim.
Byrjendur eru 11 en þar eru þau yngstu 4 ára og hér er foreldrar mætt með þau.








30.01.2013 09:36

Ísmót á Gauksmýrartjörn


Sveitasetrið Gauksmýri og Hestamannafélagið Þytur halda
 sameiginlega ísmót á Gauksmýrartjörn laugardaginn 2. febrúar nk og hefst mótið kl 13:30. Ísinn er spegilsléttur og frábær til útreiða að sögn Jóhanns sem var nýbúinn að prufa hann áður en auglýsingin var sett inn !!!
 

 

Keppt verður í tölti í 3 flokkum:

1.  1.flokki

2.  2.flokki

3.  Barna og unglingaflokki.

5 keppendur í úrslit i öllum flokkum.
 

Einnig verður keppt í unghrossaflokki ef næg þátttaka næst, en það eru hross fædd á árunum 2008 og 2009 sem eiga þátttökurétt. Þetta verður 4 ferðir (2 fram og til baka), frjáls reið.

 


Skráning hjá Kollu á netfangið [email protected]. Lokaskráningardagur er  föstudagurinn 1. febrúar, skráningargjald er 1.000.- hver skráning.

Nánari upplýsingar hjá Jóa í síma 869-7992 eða Kollu í síma 863-7786

Hægt að koma hestum í hús á Gauksmýri meðan húsrúm leyfir.

Veitingasala verður í veitingasalnum á Gauksmýri.


Allir að mæta og taka þátt í fyrsta móti ársins og hafa gaman saman.


Ef fella þarf mótið niður birtist það á heimsíðu Þyts á laugardagsmorgun.

                                                                             

Sveitasetrið Gauksmýri og Hestamannafélagið Þytur


28.01.2013 21:00

Frábært námskeið og skemmtileg Töltfimikeppni


Frábæru reiðnámskeiði hjá Trausta Þór lauk um miðjan dag á sunnudag með töltfimikeppni en þar vann  Ragnhildur Harladsdóttir naumlega Magnús Ólafsson. Hún keppti sem gestur þar sem hún var ekki á námskeiðinu og fékk þar að leiðandi ekki verðlaun. Námskeiðið var mjög vel heppnað, 18 manns á aldrinum 10 til 67 ára sóttu það og var gaman að sjá hve miklum framförum hestar og menn tóku á aðeins 2 dögum.

Trausti kom á föstudag þar sem þátttaka var meiri en ráð var fyrir gert og vann hann með einn nemandahóp á föstudag og annan á laugardag og síðan alla á sunnudag.  Hestar og knapar voru undirbúnir þessa daga fyrir töltfimi og að keppa í töltfimi.




Í keppninni lýsti Trausti öllum því sem fyrir augu áhorfandans bar og kom því vel til skila hvað væri verið að biðja um, hvar og hvenær. Það var mjög skemmtilegt og fróðlegt og áhorfendur ánægðir með það.

Úrslit urðu þau að Magnús Ólafsson varð í 1. sæti, Guðmundur Sigfússon í 2. sæti og Eline Schrijver í 3. sæti. Flottar sýningar hjá þeim.



     Eline, Guðmundur og Magnús ásamt Trausta Þór að loknu námskeiði.



Sigurbjörg Jónsdóttir í Litladal gaf verðlaun í fyrsta sætið en það var þessi fallegi hestshaus sem hún skar út. Kærar þakkir fyrir það.







Myndir komnar í albúm.


26.01.2013 17:42

Töltfimi - keppni


Þeir nemendur sem hafa verið á námskeiði hjá Trausta Þór um helgina munu ljúka námskeiðinu á morgun með keppni í Töltfiminni. Sjá má upplýsingar um töltfimi hér.



   

Mótið hefst um kl. 15 á morgun sunnudag.

Allir velkomnir að koma og horfa á.



26.01.2013 14:32

Fundur mótanefndar

Fundur var haldinn í mótanefnd Neista miðvikudaginn 23.01.2013
  

1.       Mótaröð Neista 2013.  

Rætt var um mótaröðina og framkvæmd hennar, reglur, dagssetningar og fl.  Eftirfarandi var ákveðið varðandi komandi keppnir.  Mótaröðin heitir "Mótaröð Hestamannafélagsins Neista 2013".  Mótaröðin hefst 14 febrúar eins og áður hefur komið fram á tölti T7 í opnum flokki, áhugamannaflokki og flokki 16 ára og yngri.  Þannig verða flokkarnir út mótaröðina.  Veitt verða verðlaun fyrir stigahæstu knapana í þessum flokkum í lok mótaraðarinnar. Verðlaun verða veitt fyrir 1-3 sæti í samanlögðum stigafjölda í hverjum flokki fyrir sig. Stigagjöf verður þannig: 1 sæti gefur 10 stig, 2 sæti 8 stig, 3 sætið 6 stig, 4 sætið 5 stig, 5 sætið 4 stig og svo koll af kolli niður í 8 sætið sem gefur 1 stig.  Mótið verður þá svohljóðandi:

·              14 febrúar tölt T7 opinn flokkur, áhugamannaflokkur og 16 ára og yngri.

·              24 febrúar verður ístölt (sjá breytingu á dagssetningu) opinn flokkur, áhugamannaflokkur og 16 ára og yngri.

·             7 mars fjórgangur opinn flokkur, áhugamannaflokkur og 16 ára og yngri.

·             21 mars Tölt T1 opinn flokkur, áhugamannaflokkur og 16 ára og yngri.

·              6 apríl fimmgangur opinn fyrir alla (Sjá breytingu á dags.)

Tölt T1 opinn flokkur, áhugamannaflokkur og 16 ára og yngri.

Skoðað verður hvort að hægt sé að nota keppnisvöll, ef ekki þá verður höllin notuð.  Ákveðið var að fimmgangurinn yrði opinn fyrir alla flokkana og stigagjöfin yrði þannig að fyrir 1 sætið yrði 5 stig, 2 sætið 4 stig, og svo koll af kolli niður í 1 stig fyrir 5 sæti.

 

2.       Önnur mál. 

·              Verkefnum var skipt á milli stjórnarmanna varðandi mótaröðina og framkvæmd mótanna.

 

 

 Víðir Kristjánsson, Ólafur Magnússon, Raghildur Haraldsdóttir,Pétur Snær Sæmundsson, Höskuldur B.Erlingsson

25.01.2013 12:29

Töltfimi



Úr Hestablaðinu í dag 25.01.2013 

Fyrsta kynningarmótið í Töltfimi á Íslandi verður haldið á Blönduósi sunnudaginn 27. janúar.

Fyrsta kynningarmótið í Töltfimi á Íslandi verður haldið á Blönduósi sunnudaginn 27. janúar. Mótið er haldið í tengslum við reiðnámskeið sem Trausti Þór Guðmundsson, tamningamaður og reiðkennari, heldur þar um helgina.

Trausti Þór segir að mikill áhugi sé hjá hinum almenna hestamanni á Töltfiminni, kannski vegna þess að þar sjái fólk að það eigi möguleika á að ná árangri án þess að eiga topp gæðing, hágengan og flottan. Töltfimin sé keppni í þjálfun og reiðmennsku.

"Þetta er spennandi verkefni sem er ennþá í mótun. Sú útgáfa sem við lukum við í desember og til stóð að kynna er sennilega of þung fyrir hinn almenna hestamann og ég mun því prófa léttari útgáfu hér á Blönduósi þar sem minni kröfur verða gerðar á hæga töltinu, sem er síðasta umferðin af fjórum.

Upphaflega var Töltfimin hugsuð sem verkefni á meistarastigi. Það kom í ljós að þetta var mun snúnara en menn töldu í fyrstu, jafnvel fyrir þaulvana reiðmenn. Kannski vegna þess að við höfum ekki verið að temja og þjálfa hrossin okkar samkvæmt þjálfunarskalanum. En ég held að um leið og fólk fer að þjálfa samkvæmt honum með þetta verkefni í huga, það er að segja Töltfimina, þá verði hún einmitt mjög ákjósanlegt próf á það hvar fólk er statt með sinn hest í þjálfuninni. Ég er mjög spenntur að sjá hvernig okkur tekst til á sunnudaginn," segir Trausti Þór Guðmundsson

25.01.2013 08:32

Námskeið í Reiðhöllinni


Námskeið verða í Reiðhöllinni frá k. 10. í dag föstudag til sunnudagskvölds eða eitthvað fram yfir miðjan dag á sunnudeginum.
Gera má ráð fyrir því að hún sé samt laus eftir kvöldmat alla dagana.

21.01.2013 15:52

Folaldasýning úrslit


Góð þátttaka var á folaldasýningu, bæði hvað varðar folöld og áhorfendur.
Helstu ræktendur á svæðinu voru mættir með yfir 30 folöld og gekk sýningin vel.
Dómarinn Eyþór Einarsson valdi bestu folöldin og áhorfendur einnig í hvorum flokki. Áhorfendur voru sammála dómara um efsta sætið í báðum flokkum.

Úrslit urðu þessi: 

Hestar:
1. Ljósvíkingur frá Steinnesi, leirljós
    F: Óskasteinn frá Íbishóli
    M: Djörfung frá Steinnesi
    Rækt. og eig.: Magnús Jósefsson

2. Leiknir frá Blönduósi , brúnn
    F: Viti frá Kagaðarhóli
    M: Sandra frá Hólabaki
    Rækt.: Björn Magnússon og Hrímahestar ehf
    Eig.: Hrímahestar ehf

3. Fannar frá Blönduósi, brúnskjóttur
    F: Toppur frá Auðsholtshjáleigu
    M: Ungfrú Ástrós frá Blönduósi
    Rækt. og eig.: Sigríður Grímsdóttir og Eyjólfur Guðmundsson

4. Frosti frá Geitaskarði, grár
    F:  Kvartett frá Túnsbergi
    M: Röskva frá Geitaskarði
    Rækt.: Sigurður Örn Levy og Sigurður Örn Ágústsson
    Eig.: Gjón Gunnarsson

5. Sjóður frá Steinnesi, grár
    F: Spuni frá Vesturkoti
    M: Muska frá Sigríðarstöðum
    Rækt. og eig.: Magnús Jósefsson


Hryssur:
1. Þrúður frá Skagaströnd, brún
    F: Þröstur frá Hvammi
    M: Þjóð frá Skagaströnd
    Rækt. og eig.: Þorlákur Sveinsson og Lalli ehf

2. Björk frá Grænuhlíð, brún
    F: Víðir frá Prestbakka
    M: Þruma frá Grænuhlíð
    Rækt. og eig.: Ásmundur Óskar Einarsson

3. Limra frá Blönduósi, rauðskjótt
    F: Kapall frá Kommu
    M: Hrifning frá Árgerði
    Rækt. og eig.: Ásgeir Blöndal og Hrímahestar ehf
  
4. Sigurrós frá Hólabaki, bleikálótt
    F: Fróði frá Staðartungu
    M: Sigurdís frá Hólabaki
    Rækt. og eig.: Björn Magnússon

5. Fenja frá Skagaströnd, rauðstjörnótt
    F: Styrmir frá Skagaströnd
    M: Milljón frá Skagaströnd
    Rækt.: Jón Heiðar Jónsson
    Eig.: Jón Heiðar Jónsson og Aron Logi Svavarsson


Stórræktendurnir Magnús Jósefsson og Þorlákur Sveinsson unnu því folatollana sem í boði voru.


19.01.2013 09:30

Folaldasýning

Folaldasýning 
í Reiðhöllinni Arnargerði, Blönduósi
sunnudaginn 20. janúar, kl. 14.00.


25 folöld eru skráð, bestu folöldin valin af áhorfendum.

FRÍTT inn.

Hrossaræktarsamtök A-Hún

16.01.2013 14:37

Folaldasýningin, lokaskráningardagur á morgun 17. jan !!!


Folaldasýning verður haldin
í Reiðhöllinni Arnargerði, Blönduósi
sunnudaginn 20. janúar, kl. 14.00.



Sýningargjald er 2.000 kr á folald og opið fyrir alla að mæta með folöld á sýninguna.

Dómari velur besta folaldið í flokkum hesta og hryssna en áhorfendur velja álitlegasta folaldið í sömu flokkum. Skráning á netföngin [email protected] og [email protected] fyrir 17. janúar.

Veglegir follatollar verða í verðlaun t.d. Aldur frá Brautarholti aðaleinkunn 8,25, Brennir frá Efri-Fitjum aðaleinkunn 8.01, Grettir frá Grafarkoti aðaleinkunn 8,23 og Klængur frá Skálakoti aðaleinkunn 8,38.

Hrossaræktarsamtök A-Hún


12.01.2013 11:21

Fjórðungsmót Vesturlands 2013



Karen, Aron, Harpa og Agnar á Fjórðungsmóti á Kaldármelum 2009


Í sumar verður haldið Fjórðungsmót Vesturlands á Kaldármelum sem fyrr.  Mótið fer fram dagana 3.-7. júlí og verður með hefðbundnu sniði. 

Framkvæmdanefnd mótsins býður hestamannafélögum á Vestfjörðum, í Húnavatnssýslum og Skagafirði að taka þátt í mótinu, sýna þar kynbótahross og keppa á mótinu eins og gert var 2009 með mjög góðum árangri. 



08.01.2013 23:24

Folaldasýning




Fyrirhuguð er að halda folaldasýningu  þann 20. janúar í reiðhöllinni Arnargerði Blönduósi ef næg þátttaka næst.

Dómari velur besta folaldið í flokkum hesta og hryssa en áhorfendur velja álitlegasta folaldið í sömu flokkum. Skráning á netföngin [email protected] og [email protected] fyrir 17.janúar. Veglegir follatollar  verða í verðlaun.

Hrossaræktar samtök A-Hún


06.01.2013 10:39

Reiðnámskeiðin að byrja


Þá fer fjörið að hefjast, búið er að raða niður námskeiðum og er þátttaka mjög góð. Allir eiga að vera búnir að fá póst um hvenær þeirra hópur á að mæta. Ef ekki endilega hafið samband við Selmu í síma 661 9961.

Reiðnámskeiðin hjá yngri og eldri krökkum, þ.e. þau sem eru ekki í knapamerkjunum, byrja í síðustu viku janúar.

Námskeiðin verða á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum í vetur og byrja í viku 3 þ.e. 14. janúar.

Mánudagur kl. 17.00 - 17.45  knapamerki 1  
Mánudagur kl. 18.00 - 18.45  knapamerki 3
Mánudagur kl. 19.00 - 19.45  knapamerki 2


Þriðjudagur kl. 17.30 - 18.15  eldri krakkar
Þriðjudagur kl. 18.20 - 19.05  knapamerki 2
Þriðjudagur kl. 19.15 - 20.00  knapamerki 1   

Miðvikudagur kl. 17.00 - 17.30  byrjendur
Miðvikudagur kl. 17.40 - 18.10  yngri krakkar
Miðvikudagur kl. 18.15 - 19.00  knapamerki 1
Miðvikudagur kl. 19.15 - 20.00  knapamerki 4


Fyrstu bóklegu tímarnir í knapamerkjum 1 og 2 eru 8. janúar og
í knapamerkjum 3 og 4 10. janúar.


Æskulýðsnefnd


06.01.2013 10:31

Mótaröð Neista




Neisti fyrirhugar að vera með mótaröð í Reiðhöllinni og ísmót í vetur.
Ísmótið á Svínavatni, Svínavatn 2013, verður á sínum stað.

Dagatalið kemur inn von bráðar og verða dagsetningar móta settar þar inn og bætt þar inná ef breytingar verða á dagsetningum. 


Mótin í Reiðhöllinni og ístöltið eru stigakeppni fyrir Neistafélaga, þar sem stigahæsti keppandinn í hverjum flokki fyrir sig hlýtur verðlaun fyrir samanlagðan árangur á mótunum.

Fyrirhugaðir mótadagar:

14. febrúar - Valentínusartölt  T7
23. febrúar  - Ísmót
2. mars  - Svínavatn 2013
7. mars - fjórgangur
21. mars - tölt T1
4. apríl - fimmgangur og tölt


04.01.2013 19:56

Stofnfélagi Neista heiðraður

Hestamannafélagið Neisti var stofnað árið 1943 í Dalsmynni. Félagið fagnar því 70 ára afmæli á þessu ári.

Stofnfélagar voru 40 talsins, en eini eftirlifandi félaginn er Gísli Pálsson frá Hofi, þá kenndur við Sauðanes. Gísli verður 93 ára í mars og dvelur nú á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi.

Stjórn Hestamannafélagsins Neista ákvað í tilefni af 70 ára afmæli félagsins að gera Gísla að heiðursfélaga Neista. Heimsótti stjórnin hann og afhenti honum viðurkenningu því til staðfestingar.

                     Hjörtur, formaður Neista, afhendir Gísla viðurkenningarskjalið. 

Gísli er vel að viðurkenningunni kominn og þótt hann hafi ekki haft hestamennsku að atvinnu, þá átti hann meðal annarra stóran þátt í uppbyggingu Hólaskóla, en þar var hann formaður stjórnar í mörg ár.

Hestamannafélagið Neisti óskar Gísla og fjölskyldu hans velfarnaðar á komandi árum.

 

Hjörtur Karl Einarsson
formaður Neista



  • 1
Flettingar í dag: 1075
Gestir í dag: 21
Flettingar í gær: 229
Gestir í gær: 19
Samtals flettingar: 428060
Samtals gestir: 50997
Tölur uppfærðar: 23.4.2024 11:25:05

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere