Færslur: 2013 Maí

26.05.2013 11:12

Uppskeruhátíð

Góður dagur hjá þeim fullorðnu í knapamerki 1 og 4 í gær en þau héldu sína uppskeruhátið.
Þau fóru í góðan reiðtúr.....

Kristján, Magnús, Guðmundur, Elín Ósk, Sigríður Sif, Sigríður Bjarney, Hrafnhildur og Sonja reiðkennari.

 

Hjörtur Karl formaður grillaði .....

 

 

og Sonja Noack reiðkennari afhenti þeim skírteinin sín.
Hér tekur Guðmundur Sigfússon við sínu prófskírteini en hann tók glæsilegt próf í knapamerki 4. Var með 9,1 í einkunn.

 


Kolbrún Ágústa Guðnadóttir var hæst í knapamerki 1 en átti ekki heimangengt en eins og gengur komast ekki alltaf allir á uppskeruhátíðir.
Það voru 5 konur sem luku prófum í knapamerki 1 og 5 sem luku prófum úr knapamerki 4, þar var sá yngsti 16 og sá elsti 67. Glæsilegir hópar.
Innilega til hamingju með prófin ykkar, frábært allt saman.

 

23.05.2013 20:22

Knapamerki 4

Frábær dagur í gær hjá hestamannafélaginu Neista þar sem 5 nemendur tóku próf í knapamerki 4 en það er í fyrsta skipti sem það er kennt hér á Blönduósi.
Kennari í vetur var Sonja Noack og prófdómari sem fyrr var Helga Thoroddsen, höfundur knapamerkjanna.


Knapamerkin hafa verið kennd hér á Blönduósi frá árinu 2007 eða strax og knapamerkjabækurnar voru gefnar út. Þá strax byrjuðu 4 unglingar sem kláruðu knapamerki 3 á þrem vetrum en fóru svo burtu í framhaldsnám. Aðsóknin hefur alltaf verið góð en fyrstu árin var einungis kennt upp í knapamerki 3 en þá fóru unglingarnir að heiman í framhaldsnám og því engir til að fara í síðustu 2 merkin. Nú í vetur voru hins vegar þeir fullorðnu sem hafa stundað nám í  knapamerkjum 1, 2 og 3 tilbúin til að fara í 4 og það gerðu 4 fullorðnir og 1 unglingur sem kláraði líka knapamerki 3 í fyrra. Þau ætluðu sér að taka knapamerki 4 á tveim árum en ákváðu á vordögum að vinna vel í vor og fara í próf sem þau og gerðu og náðu öll. Frábær árangur hjá þeim, sá elsti er 67 ára og sá yngsti 16 svo á þessu má sjá hve breiður hópur stundar hestamennsku saman, það skiptir ekki máli á hvaða aldri maður er og hvenær maður byrjar.

Innilega til hamingju og innilegar þakkir til Sonju Noack sem kenndi öll knapamerkin í vetur ásamt öðrum námskeiðum.
 

Hér eru próftakarnir Magnús Ólafsson, Hrafnhildur Björnsdóttir, Sigríður B. Aadnegard, Kristján Þorbjörnsson og Guðmundur Sigfússon ásamt Sonju Noack reiðkennara og Helgu Thoroddsen prófdómara.

 

21.05.2013 20:35

Kynbótasýning á Hvammstanga

Kynbótasýning hrossa hefst á Hvammstanga fimmtudaginn 23. maí kl 9:00

Yfirlitssýning verður föstudaginn 24. maí og hefst kl 9:30                                        

Röð knapa
                                       
                Fimmtudagur 23. maí kl 9:00                        
        1        James Bóas Faulkner                        
        2        Elvar Logi Friðriksson                        
        3        Fanney Dögg Indriðadóttir                        
        4        Ísólfur Líndal Þórisson                        
        5        Hulda Jónsdóttir                        
        6        James Bóas Faulkner                        
        7        Elvar Logi Friðriksson                        
        8        Fanney Dögg Indriðadóttir                        
        9        Ísólfur Líndal Þórisson                        
        10        James Bóas Faulkner                        
                                       
                Fimmtudagur 23. maí kl 13:00                        
        1        Tryggvi Björnsson                        
        2        Fanney Dögg Indriðadóttir                        
        3        Elvar Logi Friðriksson                        
        4        Ísólfur Líndal Þórisson                        
        5        James Bóas Faulkner                        
        6        Tryggvi Björnsson                        
        7        Elvar Logi Friðriksson                        
        8        Herdís Einarsdóttir                        
        9        Ísólfur Líndal Þórisson                        
        10        James Bóas Faulkner                        
        11        Tryggvi Björnsson                        
                                       
                Fimmtudagur 23. maí kl 16:00                        
        1        Tryggvi Björnsson                        
        2        James Bóas Faulkner                        
        3        Svavar Halldór Jóhannsson                        
        4        Herdís Einarsdóttir                        
        5        Tryggvi Björnsson                        
        6        Ólafur Magnússon                        
        7        James Bóas Faulkner                        
        8        Svavar Halldór Jóhannsson                        
        9        Tryggvi Björnsson                        

10.05.2013 18:15

Félagsmót Neista

Félagsmót Hestamannafélagsins Neista verður haldið laugardaginn 15 júní nk. jafnframt er mótið úrtaka fyrir Fjórðungsmót en Neisti hefur rétt á því að senda 4 fulltrúa úr hverjum flokki.   Nánar auglýst síðar !!

Mótanefnd

08.05.2013 22:00

Afmælissýning tókst vel


Hestamannafélagið Neisti var stofnað 1943 í Dalsmynni. Stofnendur voru 40 talsins, allt karlmenn. Guðbrandur Ísberg var formaður í 29 ár en núverandi formaður er Hjörtur Karl Einarsson.

Í vetur var ákveðið að fagna afmælinu og halda a
fmælissýningu sem haldin var sl. sunnudag, 5. maí eftir að hafa verið frestað um viku vegna veðurs. Sýning tókst með eindæmum vel en
veðurspáin var ekkert spennandi fyrir þennan dag, rok og slydduspá en veðurguðinn var okkur ótrúlega hliðhollur og var frábært veður framan af degi en um leið og sýningin var búin, rauk hann upp með norðaustan roki og rigninu. Vægast sagt ömurlegu veðri.

Í vetur voru 40 börn og 10 fullorðnir á námskeiðum hjá félaginu. Langflest börnin tóku þátt í sýningunni en einnig komu nokkrir unglingar sem eru burtu í framhaldsskóla  og æfðu nokkrar helgar, sem og krakkar sem ekki eru á námskeiðum. Í heildina tóku því nærri 50 börn þátt í sýningunni.
Sonja Noack sá um alla kennslu í vetur og var yngsti nemandinn 2ja ára og sá elsti 67 ára. Sá yngsti og sá elsti heita báðir Magnús Ólafsson og eru kenndir við Sveinsstaði
. Þeir voru auðvitað báðir mættir á sýninguna og voru glæsilegir.



Þennan texta fegnum við frá Magnúsi eldri:

"Magnús Ólafsson eldri er nú 67 ára og er sá elsti, sem tekur þátt í reiðnámskeiði á vegum Neista í vetur. Hann byrjaði fyrir 4 árum að taka þátt í knapamerkjanámskeiðum og stefnir á að taka próf  4 stigs í vor. Ástæðan fyrir að Magnús byrjaði var áskorun Helgu á Þingeyrum sem taldi að hann gæti skánað til muna sem reiðmaður og staðreyndin er sú að árið áður en hann byrjaði í knapamerkjanáminu þá 63 ára gamall,  tók Magnús þátt í sínu fyrsta móti í hestaíþróttum. Þá var hann í einu af neðstu sætunum, en hefur síðan verið að smá bæta sig og í vetur vann hann stigakeppnina í áhugamannaflokk Neista.

Trúlega mun nú þurfa að teyma eitthvað lengur undir Magnúsi yngri en hver veit nema hann verði bráðum farinn að hjálpa afa. Allavega virðist áhuginn vera mikill enn sem komið er og ekki er ótrúlegt að þeir eigi oft eftir að fara saman á hestbak meðan heilsa endist hjá þeim gamla.

Að lokum þetta sem sá eldri skrifaði á blað við skírn þess yngri.

Áfram lífið ávallt gengur
yl í hjarta finn
Þegar lítill ljúfur drengur
lítur afa sinn."


Dagskráin, sem hófst með fánareið 7 kvenna, var fjölbreytt og reynt var að hafa atriðin þannig að allir krakkarnir sem voru á námskeiðum í vetur gætu tekið þátt.

Þau minnstu voru að sjálfsögðu með sitt eigið strumpaatriði og foreldrar teymdu undir. Yfirstrumpur var Sonja en Sigurlaug Markúsdóttir sá um búninga.



Trðúðarnir komu á eftir og fóru í þrautabraut, fóru létt með það og sýndu vel hvað þau eru flinkir knapar. Yfirtrúður var Sonja.




Klárhestar mættu á svæðið, Hestalistinn og Borðareið. Leikþátturinn Pétur Pan, Kúrekar og Indíánar háðu keppni þar sem indíánar unnu og fengu smá glaðning í verðlaun. Riddarar Merlins voru með mynsturreið og voru í þessum flottu skykkjum sem Sigurlaug hannaði og saumaði. Heimasæturnar á Hofi mættu með Hofsdansinn og framhaldsskólakrakkarnir 3, sem hafa verið í mörg ár á námskeiðum hjá Neista bjuggu til sitt atriði ásamt 3 krökkum úr 10. bekk. 





Landsmótsfararnir í barna- og unglingaflokki mættu í verðlaunaafhendingu og voru flott að vanda. Ásdís mætti á Prímus, Sigurður Bjarni á Prinsessu og Haukur á Viðari. Flott.


Nemendur í knapamerki 4 komu og sýndu okkur hvað þau eru að læra og Sonja útskýrði það vel fyrir áhorfendum. Gaman að sjá og heyra.




Jóhanna Stella og Grímur á Reykjum voru með afkvæmasýningu á börnum sínum og á heimaræktuðum hrossum sem systkinin hafa tamið og/eða þjálfað að mestu leyti sjálf. Jóhanna og Grímur hafa keyrt krökkunum sínum niður á Blönduós á námskeið í Reiðhöllinni síðan 2002, eða 12 ár, en fyrstu námskeiðin voru haldin þann vetur og var þá strax mikil þátttaka.
Jóhanna segir í texta sem fylgdi atriðinu:

"Krakkarnir hafa verið með á námskeiðum frá því fyrsta námskeiðið var haldið hér veturinn 2002, en þá mætti Stefán Logi hingað og systkinin fylgdu með. Þegar frá leið fóru þau líka inn á völlinn. Þau eru því heimavön hér og lærði Ásdís Freyja ekki bara á hest hér heldur líka að ganga.
Fjölskyldan er sem sagt búin að keyra hingað niður á Blönduós samfleytt í 12 vetur til að sækja námskeið og keppa á mótum og á líklega eftir nokkra í viðbót.
Lopapeysurnar eru auðvitað einnig frá Reykjum, prjónaðar af húsmóðurinni, en ekkert annað kom til greina hjá afkvæmahópnum."


Auk þess að vera með börnin sín vikulega á námskeiðum í vetur og vera með þau í mörgum atriðum á sýningunni  þá tók Jóhanna að sér að búa til atriði og æfa þau fyrir þessa sýningu, sauma búninga og  hjálpa við að skipuleggja dagskrána. Margar, margar aukaferðir. Kærar þakkir fyrir.



Leikskólinn á Þingeyrum var með flott atriði en þar kom Sonja Noack, kennarinn okkar í vetur, á henni Önn frá Þingeyrum og teymdi þau tvíburasystkin Tuma Þumal og Þumallínu sem eru á 4. vetri. Þau eru lítil og krúttleg. Í lok atriðisins var Sonja kölluð fram og nafnarnir Magnús Ólafsson eldri og Magnús Ólafsson yngri veittu henni þakklætisvott frá öllum nemendunum sem voru á námskeiðum hjá henni í vetur. Hún kenndi allt frá byrjendum upp í knapamerki 4 en þar voru 5 nemendur. Það þarf mikið skipulag og mikla vinnu til að kenna og halda utan um svo marga nemendur á öllum aldri. Frábær kennari og takk fyrir veturinn.





Hestamannafélagið átti íþróttamann ársins 2012, auðvitað engan annan en Ólaf Magnússon og átti hann lokaatriðið á sýningunni. Hann kom að sjálfsögðu á eðalgæðingnum Gáska frá Sveinsstöðum. Ofboðslega flott par og gaman á þá að horfa.




Eftir sýninguna var mikil kaffi- og kökuveisla og nægur tími fyrir spjall.




Neistafélgar eru afar glaðir með daginn, það kom margt fólk að horfa á og njóta dagsins. Margir þátttakendur, á ýmsum aldri, tóku þátt og allir höfðu gaman af. Augljóslega mikið og gott starf sem unnið er í hestamannafélaginu og má það vera stolt af því hvað Neisti á marga glæsilega og flotta knapa og hesta.

Þeir sem að sýningunni stóðu þakka öllum kærlega fyrir, öllum sem tóku þátt, öllum sem komu, öllum sem hjálpuðu til og gerðu þennan dag mögulegan og skemmtilegan.

Hjálmar Ólafsson tók myndir og koma þær fljótlega inn í myndaalbúm.
Sveinn í Plúsfilm tók sýninguna upp á myndband og verður það til sölu þegar það verður tilbúið.




 

08.05.2013 14:59

Héraðssýning kynbótahrossa á Hvammstanga 21.-24. maí

Kynbótasýning fer fram á félagssvæði Þyts á Hvammstanga dagana 21. til 24. maí. Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er "Skrá hross á kynbótasýningu". Einnig er hægt að skrá hross til sýningar á heimasíðu RML (rml.is) í gegnum flýtihnapp á forsíðunni.

Síðasti skráningar- og greiðsludagur er þriðjudaginn 14. maí næstkomandi. Verð fyrir fullnaðardóm er 18.500,- kr. en fyrir sköpulagsdóm eða hæfileikadóm 13.500,- kr.

Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir sýningu í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin [email protected] og [email protected]. Endurgreitt er kr. 11.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 8.000,- fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.

Allar nánari upplýsingar í síma RML, 516-5000 eða á heimasíðu RML undir "Búfjárrækt/hrossarækt/kynbótasýningar" þar sem t.d. eru leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá hross á sýningu. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netföngin [email protected] og [email protected].

Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra. Úr stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir blóðsýni og spattmynd í WorldFeng svo hægt sé að skrá þá á sýningu.

Fram- og afturfótaskeifur þurfa að vera smíðaðar úr jafnbreiðum teini.


04.05.2013 21:19

Afmælissýningin á morgun 5. maí

Afmælissýning Neista í Reiðhöllinni Arnargerði á morgun sunnudag 5. maí kl. 14.00

Hestamannafélagið Neisti var stofnað í Dalsmynni 1943 og er því 70 ára í ár.

Í tilefni afmælisins verða Neistafélagar með sýningu í Reiðhöllinni Arnargerði þar sem taka munu þátt knáir knapar á aldrinum 2 til 67 ára. Hestakosturinn i sýningunni verður allt frá þægum og góðum barnahestum til margreyndra keppnisgæðinga.

Að sýningu lokinni verður afmæliskaffi i boði félagsins.

Aðgangur ókeypis.

Gott er að hafa með sér púða til að sitja á.


Dagskrá

1. Fánareið
2. MÓ & MÓ
3. Strumparnir
4. Þrautabraut
5. Pétur Pan
6. Indíánar og kúrekar
7. Knapamerki 4
8. Riddarar Merlins
9. Leikskólinn á Þingeyrum
10. Afkvæmi frá Reykjum
11. Haukur og Sigurgeir
12. Hofsdansinn
13. Borðareið
14. Klárhestar
15. Hestar á hringhlaupi
16. Verðlaunaafhending
17. Íþróttamaður ársins

 

  • 1
Flettingar í dag: 45
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 494
Gestir í gær: 49
Samtals flettingar: 424102
Samtals gestir: 50779
Tölur uppfærðar: 18.4.2024 02:54:09

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere