Færslur: 2013 Ágúst

13.08.2013 22:00

Framkvæmdir á vellinum

Miklar framkvædir hafa verið að undanförnu á vellinum en búið er að gera snúningshringi í báðum endum vallarins svo hægt sé að halda kynbótasýningar á vellinum.

Fréttaritari fór og hitta strákana Tryggva og Þórð í dag og þeir létu vel af sér, allt klárt fyrir fimmtudag en þá verður síðsumarsýningin.
 

 

Tryggva fannst ekkert leiðinlegt að moka möl í völlinn.

 

Spurning hvort Tryggva finnist skemmtilegra að fara brautina á þessu tæki eða hrossi :)

 

Búið er að taka vel úr hólnum og nægt pláss fyrir snúning.

 

Og nýja dómshúsið komið á sinn stað.

 

02.08.2013 23:19

Síðsumarssýning kynbótahrossa á Blönduósi

Síðsumarssýning kynbótahrossa verður á Blönduósi dagana 14. til 16. ágúst næstkomandi. Skráning og greiðsla sýningargjalda fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „Skrá hross á kynbótasýningu“.

Síðasti skráningar- og greiðsludagur er þriðjudagurinn 6. ágúst. Verð fyrir fullnaðardóm er 18.500,- kr. en fyrir sköpulagsdóm eða hæfileikadóm 13.500,- kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag áður en sýningin hefst í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið [email protected]. Endurgreitt er kr. 11.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 8.000,- fyrir hross sem aðeins hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.

Allar nánari upplýsingar í síma Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins 516-5000 eða á heimasíðunni www.rml.is þar sem t.d. eru leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá hross á sýningu. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið [email protected].

Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra. Úr stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir blóðsýni og spattmynd í WorldFeng svo hægt sé að skrá þá á sýningu.

 

  • 1
Flettingar í dag: 379
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 621
Gestir í gær: 43
Samtals flettingar: 425057
Samtals gestir: 50847
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 13:13:50

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere