Færslur: 2017 Desember

27.12.2017 08:57

Námskeið vetur 2018

Í vetur verða eftirfarandi reiðnámskeið í boði hjá Neista. Guðrún Rut Hreiðarsdóttir ætlar að kenna hjá okkur í vetur en hún er menntaður reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Skráning fer fram hjá Guðrúnu á [email protected] eða í síma 695-8766. Síðasti skráningardagur er 6. janúar.

 

Kynningarfundur um æskulýðsstarfið verður haldinn fimmtudaginn 4. janúar kl. 17:00 í reiðhöllinni. Þar verður farið nánar yfir skipulag vetrarins. 

 

 
 
 

Pollanámskeið – teymdir

Lögð verður áhersla á jafnvægi á hestbaki og grunnstjórnun hestsins í gegnum leiki og þrautir. Foreldrar/aðstoðarmenn nemanda teyma undir börnunum. Ætlað fyrir 7 ára og yngri.

 

Pollanámskeið – ekki teymdir 

Fyrir þau sem eru tilbúin að stjórna sjálf. Lögð verður áhersla á jafnvægi á hestbaki og stjórnun hestsins í gegnum leik og þrautir. Ætlað fyrir 7 ára og yngri.

 

Almennt reiðnámskeið 8 – 10 ára 

Almenn reiðnámskeið fyrir alla krakka. Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn. Leikir og þrautir á hestbaki.

 

Almennt reiðnámskeið 11 – 14 ára

Almenn reiðnámskeið fyrir alla krakka 11-14 ára. Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins, að þekkja gangtegundir og gangskiptingar. Leikir og þrautir á hestbaki.

 

Einnig verður boðið upp á kennslu í Knapamerkjum. Knapamerkin eru stigskipt nám sem fela í sér að bæta þekkingu á meðferð, notkun og umhirðu íslenska hestsins á breiðum grunni. Nemendur eru leiddir stig af stigi í takt við getu og áhuga.

 

Knapamerki 1 - 12 ára og eldri

  • Að undirbúa hest rétt fyrir reið
  • Geti teymt hestinn á múl eða beisli við hlið sér á feti og brokki/tölti
  • Geti farið á og af baki beggja megin
  • Kunni rétt taumhald og að stytta rétt í taumi
  • Geti setið hest í lóðréttri (hlutlausri) ásetu á feti, tölti/brokki og hægu stökki
  • Geti framkvæmt nokkrar sætisæfingar í hringtaum skv. stjórnun frá kennara
  • Geti skipt á milli hlutlausrar ásetu, hálfléttrar og stígandi ásetu (1. stig stígandi ásetu)
  • Kunni að skilja rétt við hest og búnað að reiðtíma loknum

 

Knapamerki 2 

  • Geta látið hestinn kyssa ístöð á baki og við hönd, til beggja hliða
  • Riðið einfaldar gangskiptingar
  • Riðið helstu reiðleiðir á reiðvelli
  • Geta riðið í hlutlausri lóðréttri ásetu, hálfléttri og stígandi ásetu
  • Hafa gott jafnvægi á baki hestsins og nota rétt taumhald
  • Látið hestinn stoppa, standa kyrran og ganga aftur af stað
  • Geta riðið á slökum taum
  • Sýna það í reiðmennsku og umgengni við hestinn að hann hafi tileinkað sér rétt viðhorf til hans
  • Geta riðið hesti á víðavangi, haft góða stjórn og gætt fyllsta öryggis

 

Knapamerki 3 og 4 

Mögulega verða knapamerki 3 og 4 kennd ef áhugi er fyrir hendi. Fjöldi tíma, tímasetningar og verð verður gefið upp að loknum síðasta skráningardegi.

 

Einka- eða parakennsla fyrir fullorðna

Einstaklingsmiðaðir reiðtímar sem fela í sér að aðstoða nemendur í að ná þeim raunhæfu markmiðum sem þeir setja sér með sjálfan sig og sinn hest jafnt byrjendur sem lengra komna.

 

Einnig er stefnt að því að fá til okkar gestakennara ef áhugi er fyrir hendi og myndi sú kennsla fara fram um helgi. Tvo til þrjá daga í röð.

 

Nánari upplýsingar um námskeiðin, svo sem tímafjölda og verð, má finna undir flipanum Námskeið vetur 2018 á stikunni hér hægra megin.

 

  • 1
Flettingar í dag: 392
Gestir í dag: 19
Flettingar í gær: 491
Gestir í gær: 44
Samtals flettingar: 408910
Samtals gestir: 49720
Tölur uppfærðar: 28.3.2024 12:58:09

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere