Námskeið vetur 2018

Veturinn 2018 ætlar Neisti að bjóða upp á eftirfarandi námskeið.

Námskeiðin eru auglýst með fyrirvara um næga þátttöku og tímasetningar og hópaskiptingar verða auglýstar að loknum síðasta skráningardegi.

Guðrún Rut Hreiðarsdóttir ætlar að kenna hjá okkur í vetur og skráning fer fram hjá henni á [email protected] eða í síma 695-8766. Síðasti skráningardagur er 6. janúar.

 

Pollanámskeið – teymdir- 9 skipti (framhaldsnámskeið í boði)

Lögð verður áhersla á jafnvægi á hestbaki og grunnstjórnun hestsins í gegnum leiki og þrautir.

Foreldrar/aðstoðarmenn nemanda teyma undir börnunum. Ætlað fyrir 7 ára og yngri.

Námskeið hefst sunnudaginn 4.febrúar

Kennt þrjá fyrstu sunnudaga í mánuði

Kennari: Guðrún Rut Hreiðardóttir

Verð: 5.000 kr.

Utan félags, verð: 5.000 kr.

 

Pollanámskeið – ekki teymdir – 9 skipti (framhaldnámskeið í boði)

Fyrir þau sem eru tilbúin að stjórna sjálf. Lögð verður áhersla á jafnvægi á hestbaki og stjórnun hestsins í gegnum leik og þrautir. Ætlað fyrir 7 ára og yngri.

Námskeið hefst sunnudaginn 4.febrúar

Kennt þrjá fyrstu sunnudaga í mánuði

Kennari: Guðrún Rut Hreiðardóttir

Verð: 5.000 kr.

Utan félags, verð: 5.000 kr.

 

Almennt reiðnámskeið 8 – 10 ára - 8 skipti (framhaldsnámskeið í boði)

Almenn reiðnámskeið fyrir alla krakka. Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins og aukið sjálfstæði í umgengni við hestinn. Leikir og þrautir á hestbaki.

Kennt verður einu sinni í viku

Kennt á miðvikudögum

Námskeiðið hefst 17. janúar

Kennari: Guðrún Rut Hreiðarsdóttir

Verð: 14.000 kr.

Utan félags, verð: 20.000 kr.

 

Almennt reiðnámskeið 11 – 14 ára, 8 skipti (framhaldsnámskeið í boði)

Almenn reiðnámskeið fyrir alla krakka 11.-14. ára. Áhersla lögð á ásetu og stjórnun hestsins, að þekkja gangtegundir og gangskiptingar. Leikir og þrautir á hestbaki.

Kennt verður einu sinni í viku

Kennt á miðvikudögum

Námskeiðið hefst 17. janúar

Kennari: Guðrún Rut Hreiðarsdóttir

Verð: 14.000 kr.

Utan félags, verð: 20.000 kr.

 

Knapamerki 1

Verklegi hlutinn:

  • Að undirbúa hest rétt fyrir reið
  • Geti teymt hestinn á múl eða beisli við hlið sér á feti og brokki/tölti
  • Geti farið á og af baki beggja megin
  • Kunni rétt taumhald og að stytta rétt í taumi
  • Geti setið hest í lóðréttri (hlutlausri) ásetu á feti, tölti/brokki og hægu stökki
  • Geti framkvæmt nokkrar sætisæfingar í hringtaum skv. stjórnun frá kennara
  • Geti skipt á milli hlutlausrar ásetu, hálfléttrar og stígandi ásetu (1. stig stígandi ásetu)
  • Kunni að skilja rétt við hest og búnað að reiðtíma loknum

Skilyrði fyrir hest nemanda á námskeið er að hann sé spennulaus og brokki vel án nokkurra vandræða.

Kennt verður einu sinni í viku

14 verklegir og 6 bóklegir tímar, aldurstakmark er 12 ára

Verkleg kennsla er á mánudögum og bókleg kennsla er annan hvern mánudag

Námskeiðið hefst 15. janúar

Kennari: Guðrún Rut Hreiðarsdóttir

Verð: 37.000 kr. með prófi og skírteini

Utan félags, verð 45.000 kr. með prófi og skírteini 

 

Knapamerki 2

Verklegi hlutinn:

  • Geta látið hestinn kyssa ístöð á baki og við hönd, til beggja hliða
  • Riðið einfaldar gangskiptingar
  • Riðið helstu reiðleiðir á reiðvelli
  • Geta riðið í hlutlausri lóðréttri ásetu, hálfléttri og stígandi ásetu
  • Hafa gott jafnvægi á baki hestsins og nota rétt taumhald
  • Látið hestinn stoppa, standa kyrran og ganga aftur af stað
  • Geta riðið á slökum taum
  • Sýna það í reiðmennsku og umgengni við hestinn að hann hafi tileinkað sér rétt viðhorf til hans
  • Geta riðið hesti á víðavangi, haft góða stjórn og gætt fyllsta öryggis

Skilyrði fyrir hest nemanda á námskeið er að hann sé spennulaus og brokki vel án nokkurra vandræða

Kennt verður einu sinni í viku

16 verklegir og 8 bóklegir tímar

Verkleg kennsla er á mánudögum og bókleg kennsla er annan hvern mánudag

Námskeiðið hefst 15. janúar

Kennari: Guðrún Rut Hreiðarsdóttir

Verð: 44.400 kr. með prófi og skírteini

Utan félags, verð 54.000 kr. með prófi og skírteini

 

Knapamerki 3 og 4

Mögulega verða knapamerki 3 og 4 kennd ef áhugi er fyrir hendi. Fjöldi tíma, tímasetningar og verð verður gefið upp að loknum síðasta skráningardegi.

Þeir sem hafa áhuga mega endilega skrá sig sem fyrst svo hægt sé að ákveða hvort nægar forsendur séu fyrir námskeiðunum.

 

Einka- eða parakennsla fyrir fullorðna

Einstaklingsmiðaðir reiðtímar sem fela í sér að aðstoða nemendur í að ná þeim raunhæfu markmiðum sem þeir setja sér með sjálfan sig og sinn hest jafnt byrjendur sem lengra komna.

Kennt verður í formi einka- eða paratíma 45 mínútur í senn.

Stefnt á að kenna á þriðjudags- og miðvikudagskvöldum.

Kennari: Guðrún Rut Hreiðarsdóttir

Verð 6000 kr. fyrir hvert skipti

 

Einnig er stefnt að því að fá til okkar gestakennara ef áhugi er fyrir hendi og myndi sú kennsla fara fram um helgi. Tvo til þrjá daga í röð.

 

Frekari upplýsingar um öll námskeiðin gefa:
Guðrún Rut, 695-8766
Harpa, 864-2196
Anna Margrét, 848-6774

 

Flettingar í dag: 3046
Gestir í dag: 330
Flettingar í gær: 1234
Gestir í gær: 398
Samtals flettingar: 446526
Samtals gestir: 53561
Tölur uppfærðar: 9.5.2024 18:57:56

Vafraðu um

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere