Færslur: 2008 Febrúar

06.02.2008 21:16

Lausaganga hunda !!!

Lausaganga hunda bönnuð
Vert er að minna alla hundaeigendur á að LAUSAGANGA HUNDA ER BÖNNUÐ á hesthúsasvæðinu. Vart hefur verið við töluverða aukningu í lausum hundum í hesthúsahverfunum og berast því kvartanir vegna þess. Hundaeigendur þurfa að passa sína hunda og mega þeir ekki ganga lausir á svæðinu.  Ekki þarf að minna á hættuna sem er þessu samfara og ef slys verða þá eru hundaeigendur ábyrgir !!

 

04.02.2008 20:30

Töltmót

Töltmót             -         Töltmót

Föstudagskvöldið 8.  feb. kl. 20:00.  Verður haldið töltmót í Reiðhöllinni Arnargerði. 
Keppt verður í unglingaflokki, áhugamannaflokki og 1. flokki.
Skráningu sé lokið á fimmtudagskvöldið á netfanginu flaga72@simnet .is  eða í síma 8679785 eftir kl. 20:00.  Ef skráningu verður ekki komið við má skrá á staðnum. Fram þarf að koma nafn knapa, nafn hests, litur og aldur og upp á hvora hönd riðið er. 
Skráningargjald hjá fullorðnum er kr. 1000 og kr. 500 hjá unglingum.
Aðgangseyrir er kr. 600.  ATH. nýir áhorfendapallar.

03.02.2008 14:33

Frá endurmenntunardeild LBHÍ

Frá endurmenntunardeild LbhÍ

Í febrúarmánuði hefjast nokkur námskeið sem sérsniðin eru að hestaáhugafólki. Ekki er krafist neinnar menntunar en æskilegt er að
 viðkomandi stundi hestamennsku. Námskeiðið, Bygging hrossa, er boðið fram í samstarfi við Hrossaræktarsamtök Suðurlands
og gefur ítarlega fræðslu um byggingu hrossa og hvaða atriði er verið að meta þegar hver eiginleiki byggingar er dæmdur.
Einnig verður farið yfir reglur kynbótasýninga og það hvernig best er að stilla hrossi upp í byggingardómi.
Mikil áhersla verður lögð á verklegar æfingar. Járningar og hófhirða verður boðið uppá á tveimur stöðum á landinu
á Ytra Álandi í Þistilfirði og á Miðfossum í Borgarfirði. Námskeið þetta er á farandlista, sem þýðir að félög geta óskað
eftir því að fá það í sitt heimahérað sé næg þátttaka fyrir hendi.

Fyrir þann sem hefur áhuga á að taka þátt í sýningum og keppni er þriggja helga námskeiðið
Uppbygging kynbóta- og sýningarhrossa
, sjá innihaldslýsingu í viðhengi.

Skráningar á [email protected] ? fram komi nafn, kennitala, heimilisfang og sími,

eða hafið samband í síma 433 5033/ 433 5000.

Með kveðju

Endurmenntunardeild LbhÍ

S: 433 5033/ 433 5000

www.lbhi.is/namskeid

[email protected]

Flettingar í dag: 911
Gestir í dag: 52
Flettingar í gær: 1424
Gestir í gær: 118
Samtals flettingar: 464740
Samtals gestir: 55829
Tölur uppfærðar: 20.5.2024 06:14:01

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere