Færslur: 2013 September27.09.2013 08:48Endurbætur reiðvega
Reiðveganefnd hestamannafélagsins Neista situr ekki auðum höndum frekar en fyrri ár en nefndin lagði fram erindi hjá skipulags, byggingar- og veitunefnd Blönduósbæjar í sumar þar sem óskað var eftir afstöðu Blönduósbæjar til lagningar reiðvegar vestan Svínvetningabrautar, framhjá heyrúllusvæðinu, vestur undir hitaveitulögn, til suðurs meðfram hitaveituæð að landamerkjagirðingu við Hjaltabakka og þaðan austur með girðingunni áleiðis að veiðihúsi Laxár á Ásum. Þar kom einnig fram að uppi voru áform að bæta reiðveginn sem liggur frá Svínvetningabraut að landamerkjagirðingu og tengjast þar með þeirri leið sem fjallað er um hér að ofan og að auki að kanna hvort hægt væri að gera reiðleið vestan Svínvetningabrautar frá hesthúsabyggð að áðurnefndri reiðleið. Skipulags-, byggingar- og veitunefndin tók erindi reiðveganefndar fyrir á fundi og samþykkti uppbyggingu þeirra í samræmi við skipulag. Þessar framkvæmdir hafa nú verið hafnar og unnið er að því að reiðvegir liggi til allra átta og vonandi lýkur framkvæmdum fyrir veturinn.
Skrifað af selma
Flettingar í dag: 453 Gestir í dag: 142 Flettingar í gær: 514 Gestir í gær: 299 Samtals flettingar: 442699 Samtals gestir: 52975 Tölur uppfærðar: 8.5.2024 07:45:03 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is