06.04.2010 12:09

Frá Endurmenntun LbhÍ

Námskeið á Miðsitju í Skagafirði um byggingadóma hrossa!    Búið er að opna fyrir skráningar ;-)

 

Lýsing: Bygging hrossa

 

Markmið með námskeiðinu er að bjóða upp á ítarlega fræðslu um byggingu hrossa og hvaða atriði er verið að meta þegar hver eiginleiki byggingar er dæmdur. Einnig verður farið yfir reglur kynbótasýninga og það hvernig best er að stilla hrossi upp í byggingardómi. Námskeiðið byggir að hluta til á fyrirlestrum en mikil áhersla verður lögð á verklegar æfingar.

 

Kennarar: Þorvaldur Kristjánsson og Eyþór Einarsson, kynbótadómarar.

 

Staður og tími:   Lau. 17. apríl kl. 10:30-17:00 (8 kennslustundir) á Miðsitju í samstarfi við Hrossaræktarsamband Skagfirðinga

 

Verð: 14.000 kr (kennsla, gögn, veitingar)

 

Skráningar hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á [email protected]  eða í síma 433 5000 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími).

Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 3.000 kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590. Senda kvittun á [email protected] með skýringu.



Flettingar í dag: 177
Gestir í dag: 9
Flettingar í gær: 1424
Gestir í gær: 118
Samtals flettingar: 464006
Samtals gestir: 55786
Tölur uppfærðar: 20.5.2024 01:20:19

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere