20.06.2011 08:47

Kvennareið 2011


Hin árlega kvennareið verður farin laugardaginn 25. júní næstkomandi. Farið verður frá Reiðhöllinni Arnargerði klukkan 16.00. Góð og skemmtileg reiðleið fyrir alla sem endar svo í grilli og gríni í Reiðhöllinni. Þemað þetta árið er rautt svo ekki er verra að punta sig og sína í tilefni dagsins.

Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst, það léttir allan undirbúning.

Nánari upplýsingar og skráning:
Guðrún Kjartansd. s:894-7543
Guðrún Blöndal s:895-0595

Frá reiðhöllinni liggur leið,
austur og yfir Hnjúka.
Þessi fagra kvennareið,
í höllinni mun ljúka.

Fagur hópur, kvennafans
ríður núna saman.
Glæstar meyjar, gleði og glans,
djöfull verður gaman.
J.Ö.S.
Flettingar í dag: 88
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 1424
Gestir í gær: 118
Samtals flettingar: 463917
Samtals gestir: 55781
Tölur uppfærðar: 20.5.2024 00:34:51

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere