Stórsýning Húnvetnskra hestamanna.
Föstudagskvöldið næstkomandi kl. 20:30 verður haldin Stórsýning Húnvetnskra hestamanna í Reiðhöllinni Arnargerði við Blönduós. Að þessari sýningu standa hestamenn úr báðum Húnavatnssýslum auk gesta úr öðrum héruðum. Að venju verður fjöldi kynbótahrossa og gæðinga sem koma fram. Mikil gróska er í barna og unglingastarfi og munu börn og unglingar skipa veglegan sess í dagskrá sýningarinnar. Glens og grín mun eiga sinn stað en einn hápunktanna verður án efa sýning ?Dívanna? úr Vestursýslunni en þær hafa heillað margan sveininni á liðnum misserum.
Fólki er bent á að mæta tímanlega en áhorfendaaðstaða hefur nú verið stórbætt í Reiðhöllinni og ætti því ekki að væsa um áhorfendur. Miðaverði er í hóf stillt að vanda, 1.500 kr. fyrir þrettán ára og eldri en 500 kr. fyrir 12 ára og yngri.
Undirbúningsnefndin.