22.05.2008 22:50Landsmót hestamanna 2008
Sérstaklega er bent á hnappinn knapar/ræktunarbú undir slóðinni: http://www.landsmot.is/index.php?pid=326 Undir þeirri slóð er að finna allar helstu upplýsingar er lúta að keppnishaldi, s.s. um athafnasvæði og beitarhólf knapa, val hrossa og keppenda á Landsmót og síðast en ekki síst skráning keppenda og hrossa frá hestamannafélögunum í Sportfeng(var Mótafengur) undir slóðinni: www.sportfengur.com. Eins og fram kemur á heimasíðu Landsmóts biðjum við ykkur vinsamlegast um að senda okkur póst yfir skráningarnar á netfangið: [email protected] eftir að skráð hefur verið í Sportfenginn. Mikið og gott starf hefur verið unnið og er í vinnslu af hálfu rekstraraðila svæðisins, Rangárbakka ehf. sem og félagsins sem hefur umsjón með byggingu Rangárhallarinnar. Afar gott samstarf er á milli LM 2008 og beggja þessara félaga. Mótsvæðið er að verða hið glæsilegasta og mun mótstjórn Landsmóts einnig leggja sitt af mörkum til að mótið verði sem veglegast og hestamennskunni í landinu til sóma. Mótstjórn LM 2008 hefur verið starfandi frá hausti 2007. Að venju er dagskráin fjölbreytt og með nokkuð hefðbundnu sniði. Mótstjórn afgreiddi dagskrá keppnishluta þegar á haustdögum (með fyrirvara um breytingar) og er hana jafnframt að finna á heimasíðu Landsmóts sem og viðauki við gögn þessi. Landsmót ehf. og LH gerðu leigusamning um svæðið fyrir um ári síðan og nýverið undirritaði framkvæmdastjóri LM 2008 leigusamning vegna notkunar á reiðhöllinni sem er í heild um 2.500 fm. Ætlunin er að í reiðhöllinni verði blönduð starfsemi; m.a. verslanir, veitingasala, netkaffi og síðast en ekki síst Hestatorgið sem mun standa að fræðslu og kynningu íslenska hestsins á mótinu. Á planinu beggja vegna brekknanna verða markaðstjöld og stórt skemmti- og veitingatjald. Skemmtanahald og dansleikir standa einungis til 01:00 á kvöldin og er það liður í að mótstórn LM 2008 er að leggja ríkulega áherslu á Landsmót sem fjölskylduhátíð. Mótsvæðið verður girt af og rýmt að nóttu til og hreinsað. Ætlunin er að hafa veglegt barnaleiksvæði með gæslu þar sem börnunum verður boðið upp á fjölbreytta leiki, karókíkeppnir, skemmtiatriði og afþreyingu og fl. Ráðgert er að hafa þar húsdýr og gefa börnunum m.a. kost á að teymt sé undir þeim. Vonum við að þessari nýjung verði vel tekið af þeim fjölda barna sem sækja mótið. Lagt verður mikið upp úr því að vera með skýra upplýsingamiðlun til áhorfenda m.a. með risaskjái við báða velli. Gefið verður út dagblað mótsins á íslensku og ensku á hverjum degi með helstu niðurstöðum og því sem hæst ber hverju sinni. Þess má einnig geta að í boði eru hjólhýsa-/vagnastæði fyrir 500 bíla og fellihýsi með aðgengi að rafmagni. Mjög margir hafa verið að nýta sér þessa þjónustu í gegnum netmiðasöluna en þar er einnig hægt að versla og panta sérstök stúkusæti. Með samvinnu LM 2008 og Icelandair með miðasölu á netinu er vonast til að komið verði í veg fyrir þá miklu örtröð sem myndast hefur við inngangshlið. Þess ber einnig að geta að Síminn hefur gert samstarfssamning við LM 2008 og áætlar að leggja ljósleiðara inn á svæðið. Þar með eru tæknimálin mun betur tryggð enda skipta þau gríðarlega miklu máli þegar verið er að vinna með allar tölur, einkunnir osfrv. Fljótlega verður veggspjöldum dreift til hestamannafélaganna í pósti og eru fulltrúar vinsamlegast beðnir um að koma því við að þau verði hengd upp við fjölfarna staði í þeirra heimabyggð sem og í hesthúsahverfum. Það er von undirritaðrar að góð stemning sé fyrir þátttöku félaga ykkar á mótinu og að hestamenn fjölmenni á 18. Landsmót hestamanna á Hellu í sumar. Þess má geta að áætlað er að halda knapafund sunnudaginn 29. júní og verður það fyrirkomulag kynnt nánar. Með vinsemd og virðingu, Jóna Fanney Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri Skrifað af SM Flettingar í dag: 1835 Gestir í dag: 28 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 931430 Samtals gestir: 88588 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 07:24:57 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is