19.06.2008 23:1317. júníNeisti hafði umsjón með hátíðarhöldunum á Blönduósi 17. júní og var það bara skemmtilegt. Angelga, Ingi, Selma og Bjartmar mættu fyrir hádegi til að "blása" í blöðrur og binda í þær band svo þær tækju ekki flugið burt. Einnig vorum við með ýmsan varning til sölu svo og andlitsmálun sem krakkarnir úr 9. og 10. bekk sáu um. Það var bara góð mæting og skemmtileg stemming á planinu fyrir framan SAH afurðir þar sem skrúðgangan hófst kl. 13.30. Neisti sá um skemmtiatriðin á Torginu og stjórnaði Þorgils Magnússon þeim og einnig sá Neisti um kaffisöluna í félagsheimilinu eftir skemmtunina en þar var kaffi, kakó og vöfflur á boðstólnum. Góður hópur fólks sá um að baka og koma öllu fram. Neisti þakkar öllum kærlega fyrir hjálpina þennan dag sem og þeim sem komu á hátíðahöldin og í kaffið ![]() Nokkrar myndir voru settar í myndaalbúm en fleiri myndir má sjá á vef Jóns Sig Skrifað af SHS Flettingar í dag: 1983 Gestir í dag: 43 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 931578 Samtals gestir: 88603 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 09:18:13 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: heneisti@gmail.comAfmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is