21.09.2008 17:26Miðar á Uppskeruhátíðina rjúka útMiðar á Uppskeruhátíðina rjúka út!
Miðasala á Uppskeruhátíð hestamanna er í fullum gangi og rjúka miðarnir út. Fáir miðar eru eftir í borðhaldið og eru áhugasamir hvattir til að tryggja sér miða sem fyrst. Hátíðin fer fram á Broadway laugardaginn 8. nóvember nk. og að venju verða knapar ársins í öllum flokkum útnefndir ásamt hrossaræktanda ársins. Boðið verður upp á sprell og gaman yfir borðhaldi og svo mun stórhljómsveitin "Í svörtum fötum" leika fyrir dansi fram á nótt undir forystu orkuboltans Jónsa. Miðasalan fer fram hjá Broadway í Reykjavík í síma 533 1100 og í miðasölu Broadway Ármúla 9, alla virka daga frá kl. 12-18. Miðaverð er kr. 7.900 í borðhald og dansleik, en kr. 2.000 á dansleik frá miðnætti. Snyrtilegs klæðnaðar er krafist. Ekki missa af þessari stórhátíð hestamanna - tryggðu þér miða strax!
Félag hrossabænda og Landssamband hestamannafélaga
Mynd: Knapa árins 2007 hampað. Ljósm.: HGG Flettingar í dag: 659 Gestir í dag: 17 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930254 Samtals gestir: 88577 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:36:03 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is