14.01.2009 22:09FEIF Youth Camp 2009FEIF Youth Camp 2009
Æskulýðsnefnd LH auglýsir eftir umsóknum á FEIF Youth Camp sem haldinn verður í Bandaríkjunum dagana 17. - 24. júlí 2009. Búðirnar verða haldnar í Wisconsin, í um 2 klst. fjarlægð frá Chigaco á búgarði sem heitir Winterhorse farm.
Dagskráin verður í grófum dráttum á þessa leið; farið verður í reiðtúr, indíanar og kúrekar koma í heimsókn, bátaferð, farið í vatnaskemmtigarð og jafnvel í smá verslunartúr.
Þátttakendur þurfa að vera á aldrinum 13 - 17 ára, á árinu, og verður gerð krafa um að þeir hafi einhverja reynslu í hestamennsku og geti gert sig skiljanleg á ensku.
Þátttökugjald er 530 - 550 ? og hefur hvert land rétt til að senda 2 þátttakendur, en einnig verður biðlisti ef sæti losna. Flugfargjald er ekki innifalið í þátttökugjaldinu.
Umsóknir þurfa að berast á skrifstofu LH, Engjavegi 4, Íþróttamiðstöðinni Laugardal, 104 Reykjavík fyrir 20. janúar 2009. Á umsókninni þarf að koma fram nafn, kennitala, heimili, í hvaða hestamannafélagi viðkomandi er og nokkrar línur um reynslu í hestamennsku.
Þegar búið verður að velja þá úr sem uppfylla skilyrðin verður dregið úr umsóknum.
Kveðja frá Æskulýðsnefnd Landssambandsins Skrifað af sm Flettingar í dag: 972 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930567 Samtals gestir: 88578 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:57:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is