14.01.2009 22:23Húnvetnska liðakeppninHúnvetnska liðakeppnin Stefnt er að því að halda fyrsta mótið í Húnvetnsku liðakeppninni í Hvammstangahöllinni 13. febrúar næstkomandi. Mótið er eins og nafnið ber með sér, liðakeppni og verður heil mótaröð þar sem safnað verður stigum á hverju móti fyrir sig og í lok mótaraðarinnar stendur uppi eitt sigurlið. Á fyrsta mótinu verður keppt í tölti, í 1. flokki, 2. flokki og flokki 16 ára og yngri. Liðin skiptast þannig, Reglur fyrir Húnvetnsku mótaröðina/liðakeppni eru þessar: 1. flokkur, ef keppendur eru 16 eða fleiri eru B-úrslit haldin. 4 efstu eru öruggir í A-úrslit, sá fimmti þarf að vinna sig upp í úrslitin. Stig í A-úrslitum eru gefin þannig: Sé keppt í B-úrslitum fá þeir aðilar sem komast í þau úrslit 1 stig nema það par sem vinnur sig upp úr B-úrslitum fær engin stig í B-úrslitunum en á möguleika á fleiri stigum í A-úrslitum. 2. flokkur, sömu reglur í sambandi við A- og B-úrslit. Stigagjöf er þó öðruvísi. Stig í A-úrslitum eru gefin þannig: Sé keppt í B-úrslitum fá þeir aðilar sem komast í þau úrslit 1 stig nema það par sem vinnur sig upp úr B-úrslitum fær engin stig í B-úrslitunum en á möguleika á fleiri stigum í A-úrslitum. Knapar verða að vera í sama liðinu allt tímabilið, þ.e. bannað að skipta um lið á miðju tímabili. Barna- og unglingaflokkur (16 ára og yngri) eru ekki með í stigakeppninni. Engin takmörk eru á fjölda liðsmanna í hverju liði. Leyfilegt er að fá liðsmann utan héraðs til að keppa fyrir sitt lið, en hann verður þá að keppa með sama liðinu allt tímabilið. Skráning er á mail: [email protected] fyrir 10. febrúar nk. Skrifað af sm Flettingar í dag: 972 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930567 Samtals gestir: 88578 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:57:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is