15.01.2009 19:44Nýir eigendur að stóðhestinum Braga frá Kópavogi Tryggvi Björnsson á Blönduósi og Magnús Jósefsson í Steinnesi hafa keypt stóðhestinn Braga frá Kópavogi. Seljandi er Jónas Hallgrímsson á Seyðisfirði. Tryggvi hyggst beita Braga á keppnisvellinum á komandi keppnistímabili. Bragi er undan hálfsystkinunum Geysi frá Gerðum og Álfadísi frá Kópavogi, sem bæði voru undan Ófeigi frá Flugumýri. Hann vakti mikla athygli á íshallarmótum þar sem hann gerði mikla lukku, þá foli á fimmta vetur. Hann er með allgóðan kynbótadóm, 8,18, og hefur fengið 9,0 fyrir tölt, fegurð, fet, hægt tölt og hægt stökk. Hann er með 7,5 fyrir skeið. Tryggvi bindur vonir við að Bragi geti orðið skeinuhættur í fimmgangi og tölti, eins og einkunnir gefa til kynna. Hann segir að skeiðið sé mun efnilegra en hann reiknaði með. Bragi á 48 skráð afkvæmi. Þar af er eitt með dóm, Bjartey frá Úlfsstöðum, sem fékk 7,58 fjögra vetra. Skrifað af sm Flettingar í dag: 972 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930567 Samtals gestir: 88578 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:57:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is