12.02.2009 10:23Þingeyrar í Húnaþingilhhestar - Fréttir | 11. febrúar 2009
Jörðin Þingeyrar í Húnaþingi var lengi þekktust af bónda sínum og frægum hestamanni, Jóni Ásgeirssyni. Sonur hans var Ásgeir Jónsson á Gottorp, sem ritaði bækurnar Horfnir góðhestar. Nú eru Þingeyrar aftur komnar í hóp virðulegustu hrossabúa landsins. Þingeyrar eru í eigu Ingimundar Sigfússonar, sendiherra, og konu hans Valgerðar Valsdóttur. Jörðin hefur verið í eigu fjölskyldunnar frá því 1943. Ábúendur og ráðsmenn frá 1995 eru Helga Thoroddsen og Gunnar Ríkaharðsson. Í samstarfi hafa þessar fjölskyldur byggt upp hrossa- og ferðaþjónustubú, sem hefur skipað sér veglegan sess. Fyrir ári síðan var tekið í notkun nýtt og glæsilegt hesthús á Þingeyrum. Til viðbótar við eldra hesthús og reiðhöll. Aðstaða til tamninga og útreiða er því eins góð og hún getur orðið. Flestir hestamenn hafa heyrt um hinar rómuðu útreiðaleiðir á Þingeyrum, bæði að vetri og sumri. Helga Thoroddsen er hestamönnum vel kunn. Jafnframt því að byggja upp hrossabúið á Þingeyrum hefur hún verið ötul í félagsmálum, ástamt því að mennta sig í hrossafræðum. Hún lauk þjálfara- og reiðkennaraprófi frá Hólaskóla 2001. Hún er afar ötull tamningamaður og reiðkennari. Eitt mesta afrek hennar á sviði hestamennskunnar er þó sennilega verkstjórn knapamerkjakerfisins, sem hefur slegið í gegn á sviði reiðkennslu. Myndir: Á efri myndinni eru Helga ásamt Magnúsi Jósepssyni á Steinnesi. Magnús er með "gamla" hesthúsið á Þingeyrum á leigu og hefur þar tamningamen í seli. Á neðri myndinni er Helga á gæðingi sínum Fylki frá Þingeyrum, syni Glaðs frá Hólabaki. Spölkorn er frá hesthúsinu út á ísi lagðar víðáttur Hóps og Húnavatns. Skrifað af sm Flettingar í dag: 1835 Gestir í dag: 28 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 931430 Samtals gestir: 88588 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 07:24:57 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is