11.03.2009 10:58

Hvammstangahöllin

SMALINN

Næsta mót í Húnvetnsku liðakeppninni er SMALINN.
Það verður 20. mars nk í Hvammstangahöllinni.
 Skráning hjá Kollu á emeil: kolbruni@simnet.is fyrir miðnætti þriðjudagsins 17. mars. Fram þarf að koma nafn knapa, hestur, ætt, litur og aldur.
Brautin verður tilbúin um næstu helgi og verður líklega mjög svipuð og teikningin af Smalanum sem verður á grunnskólamótinu (læt hana fylgja hér með) og ætlar mótanefnd að setja hana upp og auglýsa tíma þar sem keppendur geta komið og prufað brautina. Þessi teikning er eins eða mjög svipuð og brautin er í KS deildinni.
En annars verður hún þannig að það verður farið á milli staura, upp á pall, í kringum staura osfrv. Þannig að það er hægt að byrja að æfa gæðingana þótt brautin sé ekki komin upp.

Keppt verður í Unglingaflokki, 2. flokki og 1. flokki.
Stig í Unglingaflokki eru 3 -2-1-1-1,
stig í 2. flokki eru 10-9-8-7-6-5-4-3-2-1 og
 stig í 1. flokki eru 10-9-8-7-6-5-4-3-2-1. Í 1. og 2. flokki fá 10 hestar að fara brautina aftur en
 5 í Unglingaflokki.



Mótanefnd Húnvetnsku liðakeppninnar
Kolla, Logi og Fanney


fengið af heimasíðu Þyts
Flettingar í dag: 493
Gestir í dag: 17
Flettingar í gær: 2519
Gestir í gær: 41
Samtals flettingar: 944989
Samtals gestir: 89104
Tölur uppfærðar: 8.4.2025 05:49:42

Vafraðu um

Eldra efni

Um hestamannafélagið Neista

Nafn:

Hestamannafélagið Neisti

Afmælisdagur:

1943

Heimilisfang:

540 Blönduós

Staðsetning:

Blönduós

Um:

Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.

Kennitala:

480269-7139

Tenglar

clockhere