23.03.2009 15:25Ísreið á Svínavatni
Í fögru veðri laugardaginn 21. mars fór reið hópur hestamanna endilangt Svínavatn. Ísinn mjög góður og á miðju vatni beið hressing fyrir hestana, sem þeir gerðu góð skil. Þá undir kirkju á Svínavatni var komið lyfti Ægir fararstjóri fleig og þakkaði góða ferð. Svínavatnið er talið um 12 km langt og þrátt fyrir hláku undanfarinna daga var varla nokkurs staðar vatn á ísnum og hann mjög traustur. Rétt í byrjun ferðar virtust hestar óöruggir og jafnvel sumir knapar einnig, en mönnum og hestum óx ásmegin eftir því sem lengra út á vatnið kom.Sammála voru menn að ferðin hafi verið frábær og mikill áhugi að endurtaka leikinn síðar. Svínavatnið er mikil vannýtt auðlynd, sem stendur vonandi til bóta. Það hefur sannað sig sem einn frábærasti mótsstaður fyrir ísmót og enginn vafi er að fjölmargir almennir hestamann gætu haft hug á að koma með í skipulagða ferð um vatnið. Myndir teknar af Magnúsi Ólafssyni og Sigurlaugu Markúsdóttur komnar inná myndaalbúm. Skrifað af selma Flettingar í dag: 659 Gestir í dag: 17 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930254 Samtals gestir: 88577 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:36:03 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is