28.06.2009 22:06Frábær ferð yfir HópiðYfir 30 konur á öllum aldri og af ýmsum þjóðernum og alls staðar af á landinu mættu við Stóru-Borg um kl. 17.00 föstudaginn 26. júní. Tilefnið var að koma saman og ríða yfir Hópið að Þingeyrum. Jóhanna á Reykjum og Sonja í Hvammi II sáu um skipulagningu þessarar ferðar og voru fararstjórar ![]() Riðið var út að Hópi og áð þar. Þar voru þeir Helgi H. Jónsson og Haukur Suska mættir með ýmiss konar góðgæti handa okkur konunum, kakó og kleinur sem og margt fleira. Alveg frábært ![]() ![]() Ferðin yfir Hóp var frábær og gekk í alla staði afskaplega vel og beið okkar veisluborð í hesthúsinu á Þingeyrum þegar þangað var komið. Þar stóð áðurnefndur Helgi og Grímur á Reykjum og grilluðu sem mest þeir máttu ofan í okkur ![]() Þökkum við þeim Sonju og Jóhönnu fyrir skipulagningu og góða ferð. Einnig þökkum við strákunum fyrir að grilla og bera í okkur veitingar ![]() Myndir komnar í albúmið Skrifað af selma Flettingar í dag: 659 Gestir í dag: 17 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930254 Samtals gestir: 88577 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:36:03 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is