05.07.2009 22:51Afburða árangur Húnvetninga á Fjórðungsmóti á Kaldármelum.Jóna Fanney Friðriksdóttir skrifar: Á Fjórðungsmóti hestamanna sem haldið var á Kaldármelum á Snæfellsnesi dagana 1.-5. júlí komu fram um 350 hross úr 16 hestamannafélögum. Hátt í 3.000 manns sóttu mótið, þótti það afar vel heppnað og fór fram í blíðskaparveðri. Húnvetnsk hross og knapar stóðu sig afar vel á Fjórðungsmótinu. Fjöldi efnilegra barna,unglinga og ungmenna úr Húnaþingi sýndu að þar eru knapar framtíðarinnar í hestamennsku á Íslandi á ferð. Þar var prúðmennska og falleg reiðmennska í fyrirrúmi. Helga Una Björnsdóttir sýndi frábæra frammistöðu í flokki ungmenna og sigraði sinn flokk á Karitas frá Kommu með einkunnina 8,57. Á mótinu hlaut Helga Una einnig reiðmenntunarverðlaun Félags tamningamanna fyrir glæsilegan árangur. Helga Una er afar efnilegur knapi sem á bjarta framtíð fyrir sér. Annar efnilegur knapi, Elín Hulda Harðardóttir, keppti í A úrslitum í flokki unglinga á hryssunni Móheiði frá Helguhvammi II og lenti hún í fjórða sæti með einkunnina 8,33. Fríða Marý Halldórsdóttir sýndi frábæra takta á Sóma frá Böðvarshólum í unglingatöltinu og eftir úrslit voru þau hnífjöfn hún og Konráð Axel Gylfason á Mósarti frá Leysingjastöðum II. Það var því riðinn bráðabani og lenti Fríða Marý í öðru sæti eftir bráðabanann. Knöpum í fullorðinsflokki gekk einnig vel á Fjórðungsmóti. Í B flokki gæðinga náðu þeir félagar Tryggvi Björnsson og Akkur frá Brautarholti fjórða sætinu með einkunnina 8,69. Gáski frá Sveinsstöðum og Ólafur Magnússon sýndu einnig góða takta og lentu í fimmta sæti með einkunnina 8,61 í B flokki gæðinga og Sindri frá Leysingjastöðum II og Ísólfur Líndal Þórisson vermdu áttunda sætið með 8,34 í einkunn í sama flokki. Tryggvi Björnsson hafði í nógu að snúast á Fjórðungsmóti og sýndi enn og sannaði að þar er hörku reiðmaður á ferð. Tryggvi sýndi fjölda afburða hrossa, þ.á.m. glæsigripinn Grástein frá Brekku sem hlaut hæstu einkunn í flokki stóðhesta 7 vetra og eldri á Fjórðungsmóti með einkunnina 8,54.
Í þriðja sæti í flokki 7 vetra stóðhesta og eldri var einnig Húnvetningur á ferð, Grettir frá Grafarkoti og var það Herdís Einarsdóttir sem sýndi Gretti. Í flokki 5 vetra stóðhesta stóð efstur afburðagæðingurinn Kiljan frá Steinnesi með 8,59 í einkunn. Var hann ákaft hylltur af áhorfendum úr brekkunni. Steinnesbóndinn, Magnús Jósefsson gerði það einnig gott í 4 vetra flokki stóðhesta og gæðingurinn hans Dofri frá Steinnesi lenti í öðru sæti í þeim flokki.
Ræktunarbúið Höfðabakki í Húnþingi vestra sem einnig tók þátt í ræktunarbússýningunni sýndi einnig glæsihross sín. Þar eru afar eftirtektarverð hross á ferð og brekkan lét vel í sér heyra þegar Höfðabakkahrossin riðu um völlinn. Það verður spennandi að fylgjast með hrossunum frá Höfðabakka og Steinnesi á næstunni. Fjöldi annarra knapa en hér eru upptalin sýndu glæsihross á Fjórðungsmótinu og viðhöfðu fallega reiðmennsku og voru okkur til mikils sóma. Húnvetningar mega vera afar stoltir af sýnu fólki eftir árangur þeirra á Fjórðungsmótinu á Kaldármelum 2009. Ég óska þátttakendum innilega til hamingju með árangurinn og hlakka til að fylgjast áfram með knöpum og hrossum úr Húnaþingi í náinni framtíð.
Skrifað af selma Flettingar í dag: 659 Gestir í dag: 17 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930254 Samtals gestir: 88577 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:36:03 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is