22.07.2009 09:33Tryggvi Björnsson valinn í landslið Íslands í hestaíþróttumEinar Öder Magnússon landsliðseinvaldur hefur tilkynnt landslið Íslands í hestaíþróttum sem keppir á Heimsmeistaramóti
íslenska hestsins í Sviss dagana 3.-9. ágúst. Liðið er skipað 19 einstaklingum og þar af eru 4 núverandi heimsmeistarar sem öðlast sjálfkrafa keppnisrétt og eiga þar með tækifæri á að verja titla sína. Liðið er þannig skipað: Íþróttaknapar Jóhann Skúlason, núverandi heimsmeistari í samanlögðum fjórgangsgreinum, keppir á Hvini frá Holtsmúla. Bergþór Eggertsson, núverandi heimsmeistari í 250m skeiði og fljúgandi skeiði 100m, keppir á Lótusi frá Aldenghoor. Þórarinn Eymundsson, núverandi heimsmeistari í fimmgangi og samanlögðum fimmgangsgreinum, keppir á Krafti frá Bringu. Sigursteinn Sumarliðason, núverandi heimsmeistari í gæðingaskeiði, keppir á skeiðhryssunni Ester frá Hólum. Snorri Dal keppir á Oddi frá Hvolsvelli. Daníel Jónsson keppir á Tóni frá Ólafsbergi. Þorvaldur Árni Þorvaldsson keppir á Mola frá Vindási. Sigurður Sigurðarson keppir á Herði frá Eskiholti. Erlingur Ingvarsson keppir á Mætti frá Torfunesi. Haukur Tryggvason keppir á Baltasar from Freyelhof. Rúna Einarsdóttir-Zingsheim keppir Frey vom Nordsternhof. Linda Rún Pétursdóttir keppir á Erni frá Arnarsstöðum. Valdimar Bergstað keppir á Orion frá Lækjarbotnum. Teitur Árnason keppir á Glað frá Brattholti. Kynbótaknapar Tryggvi Björnsson sýnir Grástein frá Brekku í kynbótadómi í flokki 7v og eldri stóðhesta. Þórður Þorgeirsson sýnir Kjarna frá Auðsholtshjáleigu í kynbótadómi í flokki 6v. stóðhesta. Guðmundur Björgvinsson sýnir Sæfara frá Hákoti í kynbótadómi í flokki 5v. stóðhesta. Gunnar Hafdal sýnir Þrumu frá Glæsibæ 2 í kynbótadómi í flokki 7v og eldri hryssna. Jóhann Skúlason sýnir Gerplu frá Blesastöðum 1a í kynbótadómi í flokki 6v hryssna. Erlingur Erlingsson sýnir Stakkavík frá Feti í kynbótadómi í flokki 5v hryssna. Landsliðseinvaldi til að aðstoðar eru þeir Anton Páll Níelsson og Sigurður Vignir Matthíasson. Dýralæknir íslenska landsliðsins er Susanne Braun. Líkt og landsliðseinvaldur greindi frá í dag er hann kynnti liðið er hér um að ræða gríðarsterka og keppnisreynda einstaklinga sem mikils er vænst af. Heimild: www.lhhestar.is Skrifað af selma Flettingar í dag: 659 Gestir í dag: 17 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930254 Samtals gestir: 88577 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:36:03 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is