14.09.2009 19:59Akkur frá Brautarholti fallinn
Stóðhesturinn
Akkur frá Brautarholti var felldur s.l. laugardag eftir að hafa veikst
alvarlega miðvikudaginn 2. september. Þrátt fyrir skjót og góð viðbrögð
dýralækna sem gerðu allt til að reyna bjarga hestinum var ekki annað
hægt en að fella þennan mikla höfðingja. Þetta kemur fram á http://www.hrima.is/, heimasíðu Tryggva Björnssonar á Blönduósi en hann var eigandi Akks ásamt Ásmundi Ingvasyni. Tryggvi segir
að ágætlega hafi litið út með bata en svo fór að lokum að honum hrakaði
mjög síðustu daga og því var ákveðið að fella hestinn. "Það er mjög
sorglegt að horfa á eftir þessum mikla höfðingja þar sem hann hefur
veitt manni mikla og góða kennslu og árangur frá því að við eignuðumst
hann í mars 2007", segir Tryggvi en þeir hafa verið sigursælir á
keppnisvellinum i gegnum tíðina. Akkur hafði hlotið í kynbótadóm 8,23 fyrir sköpulag, 8,80 fyrir hæfileika og 8,57 í aðaleinkun Sigurvegari í B. flokk hjá Þyt 2007 og 2009 heimild; huni.is Skrifað af selma Flettingar í dag: 659 Gestir í dag: 17 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930254 Samtals gestir: 88577 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:36:03 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is