Stóði
Víðdælinga verður smalað föstudaginn 2.október næstkomandi. Er búist
við fjölmenni. Stóðinu verður réttað í Víðidalstungurétt laugardaginn
3.október nk. Stóðið er rekið til réttar kl.10:00 og réttastörf hefjast.
Kl. 13:00 verður uppboð á völdum hrossum. M.a. verður boðið upp
brúnskjótt hestfolald Unnar frá Blönduósi sem er undan Álfi frá
Selfossi og 1.verðlauna hryssunni Uglu frá Kommu. Þarna er tækifærið að
ná sér í framtíðarstóðhest. Þeir hafa ekki verið ófáir stóðhestarnir
sem hafa komið frá Kommu á sl. árum
Kl. 14:30 verður dregið í happdrætti. Allir þeir sem kaupa sér kaffi
hjá Kvenfélaginu Freyju fá happdrættismiða í kaupbæti. Fjöldi
glæsilegra vinninga þar sem folald er aðalvinningurinn. Ekki dónalegt
það.