28.09.2009 22:13Brotist inn í hesthús á BlönduósiBrotist var inn í hesthús á Blönduósi um helgina og stolið þaðan hnakki og þremur beislum að verðmæti á fimmtahundrað þúsund. Að sögð eiganda hesthússins, Skarphéðins Einarssonar, eru innbrot í hesthús á Blönduósi að verða árlegur viðburður helgina sem Laufskálaréttin fer fram. -Ég varð fyrir því fyrir tveimur árum að farið var inn í húsið hjá mér þessa helgi og járningargræjunum mínum var stolið. Núna tóku þeir hnakk og þrjú beisli. Það voru fjórir hnakkar í húsinu en aðeins var tekinn sá sem einhver verðmæti voru í. Það lítur því út fyrir að þarna séu hestamenn sem eiga leið í gegn að stela frá öðrum hestamönnum. Ég veit til þess að hestamenn á Hvammstanga hafa líka verið að lenda í þessu. Þetta er mikið tjón fyrir okkur og sárt til þess að vita að þarna séu hestamenn á ferð, segir Skarphéðinn. Skarphéðinn segist hafa tekið eftir þjófnaðinum í gær og þá hafi hann látið aðra hesthúseigendur vita um innbrotið en ekki hafi orðið vart við að stolið hafi verið úr fleiri húsum. -Ég mun ekki láta taka mig svona í bólinu aftur og er ákveðin í því að tæma allt úr húsinu fyrir næstu Laufskálaréttarhelgi. heimild: www.feykir.is Skrifað af selma Flettingar í dag: 659 Gestir í dag: 17 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930254 Samtals gestir: 88577 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:36:03 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is