28.02.2010 19:29Forsala aðgöngumiða hafin á LM 2010
Frábær vildarkjör eru í boði fyrir félaga í aðildarfélögum Landssambands hestamannafélaga og Bændasamtökum Íslands og verulegur afsláttur veittur sé miði keyptur í forsölu. Afsláttur af fullu miðaverði í forsölu er allt að 25% og að auki fá félagar í LH og Bí 25% afslátt. Með þessu móti er hægt að lækka verð á vikupassa um þúsundir króna. Hver félagi í LH og BÍ getur keypt 5 miða að hámarki á vildarkjörum. Unnt er að kaupa vikupassa og helgarpassa í forsölu. Lægra gjald er greitt fyrir unglinga 14 - 17 ára og ekkert fyrir börn 13 ára og yngri. Einnig er hægt að kaupa stúkusæti og hjólhýsastæði með aðgangi að rafmagni í forsölu. Með því að kaupa miða fyrirfram er hægt að spara bæði fé og fyrirhöfn. Forsölunni lýkur 1.maí 2010 og eftir það hækkar miðaverð. Hver miði sem keyptur er í forsölu gildir einnig sem miði í happdrættispotti Landsmóts og samstarfsaðila. Um hver mánaðarmót verður dregið um veglega vinninga, sem eru til að mynda tveir vikupassar á Landsmót, leikhúsmiðar fyrir tvo í boði VÍS, beisli og DVD diskar frá versluninni LÍFLAND. Skrifað af selma Flettingar í dag: 972 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930567 Samtals gestir: 88578 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:57:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is