15.03.2010 22:05Bréf frá MatvælastofnunSláturhúsum
er óheimilt að taka við ómerktum hrossum eftir 1. apríl 2010 Reglugerð um einstaklingsmerkingar búfjár
tók gildi árið 2005 þar sem m.a. er kveðið á um að skylt sé að skrá og
einstaklingsmerkja öll hross eldri en 10 mánaða. Í byrjun voru hross fædd fyrir
árið 2003 undanþegin merkingarskyldu en nú hefur sú undanþága verið felld úr
gildi. Hross sem fædd eru árið 2008 og síðar skulu vera örmerkt en frostmerki
eru viðurkennd í eldri hrossum, að því gefnu að þau séu læsileg. Á þeim 5 árum sem liðin eru frá gildistöku
laganna hefur orðið afar jákvæð þróun í einstaklingsmerkingum hrossa en betur
má ef duga skal. Til að tryggja rekjanleika afurða, matvælaöryggi
og útflutningshagsmuni er nauðsynlegt að herða eftirfylgni með merkingum
hrossa. Eigendur hrossa bera alla ábyrgð
á að hross þeirra séu skráð og merkt. Ennfremur bera þeir ábyrgð á að hross sem
þeir senda til slátrunar séu ekki í sláturbanni vegna lyfjameðhöndlunar.
Dýralæknum er skylt að skrá allar lyfjameðhöndlanir í gagnagrunninn WF og koma þar
fram upplýsingar um sláturfrest og sláturleyfishafar bera ábyrgð á að ómerkt
hross (og þar af leiðandi ekki inni í lyfjaskráningakerfinu) séu ekki notuð í
afurðir sem fara til manneldis. Með vísan til framangreinds og 10. gr. laga nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir, en þar segir að sláturdýr megi ekki vera haldin sjúkdómi né bera leifar lyfja eða annarra aðskotaefna sem geti verið hættuleg heilsu neytenda, verður frá og með 1. apríl n.k. óheimilt að láta afurðir af ómerktum hrossum fara til manneldis. Sláturleyfishöfum verður þá skylt að
framfylgja eftirfarandi reglum: 1. Óskráð og ómerkt hross: Ekki hægt
að uppfylla kröfu um rekjanleika og matvælaöryggi. Afurðir fara því ekki til
manneldis en má nýta í loðdýrafóður. 2. Grunnskráð hross ómerkt /ólesanlegt eða
merkt hross sem ekki er grunnskráð: Eigandi fær tækifæri til að sýna
fram á eignarhald og að um réttan einstakling hafi verið að ræða (t.d. með því
að einkenni svari til lýsingar í WF) enda fylgi hrossinu yfirlýsing um að svo
sé og að hrossið hafi ekki fengið lyfjameðhöndlun undanfarna 6 mánuði ( 24 klst
regla). Að öðrum kosti fara afurðir ekki til manneldis en má nýta í
loðdýrafóður. 3. Grunnskráð hross og einstaklingsmerkt: Merking
sannreynd í sláturhúsi. Ef skemmri tími en 6 mánuðir eru frá örmerkingu skal
hrossinu fylgja skrifleg yfirlýsing eiganda um að það hafi ekki fengið
lyfjameðhöndlun á þeim tíma. Afurðir viðurkenndar til manneldis. 4. Folöld yngri en 10 mánaða sem koma til
slátrunar skulu merkt fæðingarnúmeri móður. Auðveldast er
skrifa númerið á plastlímband í ljósum lit
og festa tryggilega við fax. Ef um stóra hópa er að ræða má notast við
hlaupandi númer enda fylgi með skrá sem tengir þau númer við fæðingarnúmer
mæðra. Þeim sem vilja kynna sér forsögu málsins og/eða fá nánari
upplýsingar, er bent á neðangreinda umfjöllun: ·
Aukin eftirfylgni með lögum sem eiga að
tryggja að ekki séu lyfjaleifar í hrossakjöti sem birtist í Bændablaðinu 12.
Janúar 2010 og á www.mast.is 3. febrúar 2010. ·
Veraldarfengurinn viðurkenndur af
Evrópusambandinu sem rafrænn hestapassi á www.mast.is
4. febrúar 2010. Skrifað af selma Flettingar í dag: 1792 Gestir í dag: 28 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 931387 Samtals gestir: 88588 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 07:01:46 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is