18.03.2010 10:38KS-deildin úrslit fimmgangur
Eftir forkeppnina var í raun ekki nokkur leið að spá fyrir hver myndi sigra og til gamans má geta að öll níu hrossin sem komust í úrslit eru 1. verðlauna kynbótahross. Í B-úrslitunum hafnaði Ólafur og Ódysseifur í 9. sæti eftir að skeiðið hafði misheppnast. Jöfn í 7. og 8. sæti lentu Heiðrún með Venusi og Ísólfur með Kraft og verður að viðurkennast að Kraftur olli smá vonbrigðum en þeir komu efstir inn í úrslitin. Magnús Bragi með Vafa og Elvar með Smáralind börðust um sigurinn hafði Magnús forystuna þar til í skeiðinu en þá skaust Elvar tveimur kommum upp fyrir hann og komst þannig inn í A-úrslitin. Í A-úrslitunum höfnuðu Mette og Háttur í fimmta sæti en skeiðið heppnaðist ekki sem skyldi. Elvar komst upp í fjórða sæti og Erlingur með gæðinginn Blæ sóttu þriðja sætið. Tveir knapar börðust helst um fyrsta sætið en það voru Þórarinn með Þóru og Bjarni með Djásn og var keppnin jöfn en það er skemmst frá því að segja að Bjarni náði strax forystunni og sleppti henni aldrei og fór með sigur af hólmi. Eftir þrjár keppnir er Bjarni í forystunni, Ísólfur annar, Ólafur þriðji og Mette fjórða en mjótt er á mununum og þegar tvær greinar eru eftir smali og skeið getur allt gerst.Skrifað af selma Flettingar í dag: 1792 Gestir í dag: 28 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 931387 Samtals gestir: 88588 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 07:01:46 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is