21.04.2010 09:29Hósti í hrossumEftrifarandi tilkynning er á heimasíðu
Matvælastofnunar - mast.is Smitandi hósti í hrossum breiðist nú á milli hesthúsa víða um land og er talið líklegast að um veirusýkingu sé að ræða. Fyrstu rannsóknir benda til þess að ekki sé um hestainflúensu eða smitandi háls- og lungnakvef/fósturlát (EHV-1) að ræða en það eru alvarlegustu veirusýkingarnar sem leggjast á öndunarfæri hrossa. Áfram er unnið að því að greina orsökina. Ekki er enn vitað til þess að hross á útigangi hafi sýkst og óvíst hvort það muni gerast, en það kæmi sér sérlega illa nú þegar hætta á öskufalli er yfirvofandi á stórum landssvæðum. Hestamönnum er því ráðlagt að hafa fataskipti og þvo sér um hendur áður en útigangshrossum er gefið og ekki gefa útigangi moð frá sýktum hrossum. Mikilvægt er að hvíla hesta sem eru með einkenni öndunarfærasýkingar eða eru í byrjunarfasa slíkrar sýkingar og getur það skipt sköpum um hversu hratt þeir ná bata. Alls ekki má mæta með slíka hesta í keppni eða sýningar af nokkru tagi. Hestamenn eru því hvattir til að halda sýningahaldi í lágmarki á meðan veikin gengur yfir. Skrifað af selma Flettingar í dag: 1327 Gestir í dag: 22 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930922 Samtals gestir: 88582 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 06:18:56 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is