23.04.2010 20:32Dagskrá Tekið til kostanna 2010![]() ![]() Gustur í góðum félagsskap. Ingunn og Hágangur. Það er gaman að segja frá því að á sýningunna Tekið til kostanna munu heimasæturnar á Dýrfinnustöðum þær Ingunn og Björg mæta sérdeilis vel ríðandi. Reiðskjótar þeirra eru gæðingarnir og hestagullin Hágangur frá Narfastöðum og Gustur frá Hóli sem er í feikna formi. Það er greinilegt að Gustur fær gott atlot hjá Ingólfi bónda á Dýfinnustöðum því klárinn lítur glæsilega út og er unun að sjá hann dans um með miklum hreyfingum hjá Ingunni dóttur Ingólfs.Dagskrá sýningarinnar er nú fullmótuð og stefnir í skemmtilega og flotta sýningu. Í fyrsta sinn í heiminum verður riðin munsturreið á fljúgandi skeiði en það eru knáir skeiðreiðarmenn úr Skagafirði undir stjórn Elvars E. Einarssonar sem það sýna. Börn og unglingar úr vetrarstarfi hestamannafélagana í Skagafirði munu sýna flott munsturatriði einnig verða nemendur frá Hólaskóla með glæsileg munsturatriði. Ekki má gleyma hinum stórglæsilegu húnvetnsku Dívum sem koma með enn eitt glæsiatriðið eins og þeim er einum lagið. Sýningin byrjar kl: 20:30 á laugardagskvöldið í reiðhöllinni Svaðastaðir. Forsala miða er í reiðhöllinni og kostar miðinn 2500.- krónur. Dagskrá Tekið til kostanna 2010. Heimasæturnar á Dýrfinnustöðum Vetrarstarf Léttfeta - Atriði 1 Kynbótahross Reiðkennaraefni Hólaskóla Katla-Hervör og Christina Munsturreið á skeiði Sumarsveifla Klárhross Prúðbúnar dömur Gola og Heiðrún Hlé 20 mín Skeiðkeppni Léttisfélagar Penni frá Glæsibæ Vetrarstarf Léttfeta - Atriði 2 Alhliðahross Die Sensenfrauen (Hólanemar 1.ár) Íþróttamenn Skagafjarðar Húnvetnsku Dívurnar Bragi og Tryggvi Lesa meira Skrifað af selma Flettingar í dag: 1327 Gestir í dag: 22 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930922 Samtals gestir: 88582 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 06:18:56 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is