10.05.2010 11:00Tilkynning frá framkvæmdanefnd Landsmóts hestamannFrá fundi framkvæmdanefndar í Skagafirði 7. maí. Á
fundi framkvæmdanefndar Landsmóts hestamanna sem haldinn var í
Skagafirði, 7. maí með dýralækni hrossasjúkdóma var
ákveðið að ekki verði hvikað frá undirbúningi Landsmóts þrátt fyrir að
smitandi hósti gangi nú yfir
hrossastofninn.Kynbótasýningum verður fram haldið samkvæmt auglýstri dagskrá. Ef á þarf að halda verða settar á aukakynbótasýningar sem eingöngu verða ætlaðar þeim hrossum sem ekki hafa áður getað mætt vegna veikinda. Í lögum og reglum Landssambands hestamannafélaga, grein 6.5, er heimild til þess að félögin haldi tvær umferðir Landsmótsúrtöku. Félögin eru hvött til þess að nýta þetta ákvæði, ef þörf krefur, til að veita sem flestum tækifæri til að afla sér þátttökuréttar á Landsmóti. Hestamenn eru hvattir til að gæta að velferð hrossa sinna og mæta ekki með veik hross til keppni eða sýninga. Frekari upplýsingar um smitandi hósta hrossa er að finna HÉR. Framkvæmdanefnd Landsmóts Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma hjá Matvælastofnun Skrifað af selma Flettingar í dag: 972 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930567 Samtals gestir: 88578 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:57:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is