08.06.2010 23:18Skagfirðingar snúa vörn í sóknSumarsæla í stað Landsmóts hestamanna
Frestun Landsmóts hestamanna sem fara átti fram
27. júní - 5. júlí á Vindheimamelum í Skagafirði er mikið áfall fyrir
hestamennsku og ferðaþjónustu í landinu og samfélagið allt, þó
sérstaklega í Skagafirði, þar sem búið var að skipuleggja móttöku
þúsunda gesta. Meðal þess sem í boði verður fyrir þá sem sækja Skagafjörð heim þessa viku verða Lummudagar með glæsilegum skemmtiatriðum, knattspyrnumót fyrir stúlkur á Sauðárkróki, rútuferðir og gönguferðir um slóðir Sturlunga, Barokkhátíð á Hólum, afmælismót Golfklúbbs Sauðárkróks á Hlíðarendavelli og stórdansleikir með hestamannaívafi í Miðgarði. Kynbótasýning mun fara fram á Vindheimamelum á vegum Hrossaræktarsambandsins. Þá er ótalin sú fjölbreytta afþreying sem alla jafna er boðið er upp á í Skagafirði s.s. flúðasiglingar, skipulagðar gönguferðir, siglingar út í hinar glæsilegu eyjar Drangey og Málmey. Þá bíður Skagafjörður upp á glæsilega flóra safna s.s. Vesturfarasetur, Samgönguminjasafn, Byggðasafnið í Glaumbæ, Víðimýrarkirkju og Minjahúsið á Sauðárkróki, þar sem m.a. er hægt að berja augum ísbjörninn sem gekk á land í Skagafirði árið 2008. Gestastofa sútarans hefur verið opnuð á Sauðárkróki þar sem hægt er að fræðast um sútun á skinnum og roði og þær afurðir sem hönnuðir vinna úr því hráefni. Ný og glæsileg sundlaug á Hofsósi hefur bæst í hóp sundlauga og heitra náttúrulauga sem finna má um allan Skagafjörð. Í Skagafirði eru einnig frábærir veitingastaðir sem m.a. bjóða upp á kræsingar úr afurðum úr héraðinu og gistimöguleikarnir eru fjölbreyttir og margir, m.a. á nýju og glæsilegu tjaldstæði í Varmahlíð og endurbættu tjaldstæði á Sauðárkróki. Skagfirðingar munu því leggja sig sérstaklega fram við að taka vel á
móti og skemmta gestum sínum þá daga sem ætlaðir voru fyrir Landsmót
hestamanna. Áætlað er að Landsmót verði haldið sumarið 2011 í
Skagafirði. Skrifað af selma Flettingar í dag: 659 Gestir í dag: 17 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930254 Samtals gestir: 88577 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:36:03 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is