Á hrossaræktarráðstefnu
fagráðs í gær voru veitt ný verðlaun fyrir hæst dæmda kynbótahross
ársins, leiðrétt fyrir aldri. Verðlaunin komu að þessu sinni í hlut
stóðhestsins Kiljans frá Steinnesi sem hlaut í aðaleinkunn 8.71 eða 8.78
aldursleiðrétt, en Kiljan er sex vetra gamall.
Kiljan er undan Kletti frá Hvammi og Kylju frá
Steinnesi, Kolfinnsdóttur frá Kjarnholtum. Ræktandi Kiljans er Magnús
Jósefsson í Steinnesi, en eigendur eru Halldór Þorvaldsson, Elías
Árnason og Ingolf Nordal. Félag hrossabænda óskar ræktanda og eigendum
til hamingju með þennan frábæra árangur.
Meðfylgjandi
mynd var tekin við afhendinguna en þar standa Kristinn Guðnason
formaður Félags hrossabænda sem gefur verðlaunin, Halldór Þorvaldsson
einn af eigendum Kiljans og Magnús Einarsson hrossaræktandi í
Kjarnholtum sem afhenti verðlaunin í ár.