29.11.2010 11:58UppskeruhátíðinUppskeruhátíð húnvetnskra bænda og hestamanna var sl. laugardaskvöld og tókst í alla staði vel. Eins og fyrri ár voru veitt verðlaun fyrir hesta, kýr og kindur..... Knapi ársins 2010 hjá Hestamannafélaginu Neista er Ólafur Magnússon. Hann gerði það mjög gott í KS-deildinni, var þar í úrslitum í flestum greinum og 3. sæti í samanlagðri stigasöfnun knapa. Hann mætti á Ís-landsmót, Húnvetnsku liðakeppnina og Fákaflug og var í úrslitum á þessum mótum ![]() Óli og Gáski á Ís-landsmóti 2009 Óli og Ódeseifur á Ís-landsmóti 2010 Óli stendur ekki einn í þessu því konan hans Inga Sóley á stóran þátt í góðu gengi hans þar sem hún stendur þétt við bakið á honum, heima og heiman. Hér er Hjörtur formaður að færa henni þakklætisvott frá Hestamannafélaginu Neista fyrir að fá Óla svona oft lánaðan til að fara á keppnisvöllinn.Takk Inga Sóley ![]() Innilega til hamingju með árangurinn Óli, hlökkum til að fylgjast með þér næstu árin Óli og Inga Sóley að taka við viðurkenningum sínum Verðlaunagripurinn sem Óli fékk sem knapi árins. Viðurkenningar kynbótahrossa: Hryssur 4 vetra 5 vetra Framtíð frá Leysingjastöðum F. Orri frá Þúfu. M. Gæska Frá Leysingjastöðum B: 8,44 H: 7,89 A: 8,17 Ræktandi og eigandi: Hreinn Magnússon Sýnandi: Ísólfur Líndal Þórisson 6
vetra 7 vetra og eldri
Stóðhestar
5 vetra 6 vetra
7 vetra og eldri
Sölufélagsbikarinn
fær hæst dæmda hryssa á héraðsýningu Búnaðarbankabikarinn fær hæst
dæmdi stóðhestur á héraðssýningu Fengsbikarinn - bikar sem gefinn var til minningar um Guðmund Sigfússon frá Eiríksstöðum og veittur er hæst dæmda kynbótahrossi í eigu heimamanns. Kiljan frá Steinnesi Bikar til minningar um Magnús Blöndal frá Skagaströnd Gefinn af Sveini Inga Grímssyni og fjölskyldu til minningar um Magnús Blöndal. Er hann veittur hæst dæmda 4 vetra stóðhesti í Austur-Húnavatnssýslu. Magni frá Sauðanesi
Ræktunarbú 2010 : Steinnes í Húnavatnshreppi Á árinu 2010 voru sýnd 12 hross frá Steinnesi á kynbótasýningum - Meðaleinkunin á þessum 12 hrossum er 7.91 þar af fengu 5 8,00 eða meira í aðaleinkunn. Skrifað af selma Flettingar í dag: 972 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930567 Samtals gestir: 88578 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:57:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is