13.02.2011 21:45Grunnskólamótið á Blönduósi
verður í Reiðhöllinni Arnargerði á Blönduósi Skráningar þurfa að hafa borist fyrir Fram þarf að koma: nafn, bekkur og skóli knapa nafns hests, aldur, litur og keppnisgrein. Keppnisgreinar eru:
og skal greiða á staðnum áður en mót hefst.
smalabraut 4. - 10. bekkur þrautabraut 1. - 3. bekkur Reglur keppninnar eru: Grunnskólamót Mótið er hugsað til að efla áhuga á hestaíþróttinni og gefa sem flestum kost á því að taka þátt. Keppt er eftir venjulegum hestaíþróttareglum og dæmt í samræmi við þær, keppni skal stjórnað af þul. Keppendur skulu hneigja sig í upphafi og lok keppni og hlíta fyrirmælum þular í hvívetna. Allir grunnskólanemar á Norðurlandi vestra eiga þátttökurétt. 1. Mótið heitir
Grunnskólamót hestamannafélaga á Norðurlandi vestra. Ø Fegurðarreið 1. - 3. bekkur. Þar eru riðnir 3 hringir og látið fara fallega dæmt skal eftir stjórnun og þokka. 2 - 3 keppendur inná í einu. Ø Tvígangur 4. - 7. bekkur. Riðið brokk eða tölt tveir hringir og fet ½ hringur. Knapi má sýna tölt og brokk og þá er betri gangtegundin dæmd. Áseta og stjórnun dæmd. Ø Fjórgangur 8. - 10. bekkur. Venjuleg íþróttakeppni, riðnir fjórir og hálfur hringur. Einn hringur hægt tölt, einn hringur yfirferðar tölt, ½ hringur fet , einn hringur brokk og einn hringur stökk. Ø Þrautabraut 1. - 3. bekkur. Áseta, stjórnun og færni dæmd. Engin tímataka. Hringurinn 3 metrar í ummál Ø Smali 4. - 7. og 8 .- 10. bekkur. Smalabrautin skal vera skýr og hættulaus og forðast skal allan óþarfa glannaskap. Keppt skal eftir tíma og skal bæta 4 sekúndum við tíma fyrir hverja keilu sem felld er eða sleppt. Ef sleppt er hliði bætast 2x4 sekúndur við. Gult spjald er jafnt og 10 sekúndur og má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu. Ø Tölt 4. - 7. bekkur. Tveir inná í einu, riðið hægt tölt, einn hringur, snúið við og riðið tölt með hraðabreytingum á langhliðum einn hringur og fegurðarreið einn hringur, samtals þrír hringir . Ø Tölt 8. - 10. bekkur. Tveir inná í einu, riðið hægt tölt, einn hringur, snúið við og riðið tölt með hraðabreytingum á langhliðum einn hringur og greitt tölt einn hringur, samtals þrír hringir . Ø Skeið 8. - 10. bekkur mega keppa í skeiði og skal tímataka vera samkvæmt venju á hverjum stað. Fara skal 2 spretti og betri tíminn gildir. v Gult spjald má sýna ef knapi sýnir grófa reiðmennsku og jafnvel víkja keppanda úr sýningu. 3. Keppandi má koma með hest hvaðan sem er, hesturinn(eigandinn)/hesteigandi þarf ekki að vera í hestamannafélagi viðkomandi skólahverfis. 4. Börn í 1. - 3. bekk mega ekki keppa á graðhesti. 5. Foreldrar mega ekki vera inn á keppnisvellinum meðan á keppni stendur. 6. Í tölti og tví- og fjórgangi mega keppendur keppa á fleiri en einum hesti, en í úrslitum verður einungis einn hestur frá hverjum knapa. 7. Ef tveir eru jafnir í 5. og 6. sæti skulu báðir mæta í úrslit og verðlauna bæði sætin sem 5. sæti. 8. Járningar, 10 mm skeifur og 250 gr. hlífar eða 8 mm og botnar. 9. Í smala er ekki leyft að ríða við stangir, annars gilda almennar íþróttakeppnisreglur. Stig Stigatafla fyrir alla greinar nema skeið, Ef allir keppendur í úrslitum eru frá sama skóla fær skólinn einungis stig fyrir efsta sætið, síðan næsti skóli inn í úrslit og svo framvegis. 1. sæti gefur
10 stig til viðkomandi skóla Stigatafla fyrir skeið, öll stigin geta farið á sama skóla, þetta er aukabúgrein. 1. sæti gefur 5 stig Skrifað af selma Flettingar í dag: 972 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930567 Samtals gestir: 88578 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:57:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is