16.02.2011 09:31Sparisjóðs-liðakeppnin Smali/skeiðSMALI/SKEIÐ er næsta mót liðakeppninnar og mun Neisti sjá um mótið og það verður í Reiðhöllinni Arnargerði 26. febrúar nk. og hefst kl. 16.00 Skráning er á netfang Neista [email protected] fyrir miðnætti þriðjudagskvöld 22. febrúar. Fram þarf að koma nafn knapa, flokkur, hestur, litur, aldur og hvaða liði keppandinn er. Skráningargjöld eru 1.500 kr í smala fyrir fullorðna en 500 fyrir unglinga. SKráningargjöld í skeið eru 1.000 kr og þarf að gr...eiða þau áður en mót hefst inná reikning Neista 0307-26-055624 kt. 480269-7139 og senda kvittun á netfang Neista [email protected] Keppt verður í unglingaflokki (fædd 1994 og seinna), 3. flokki, 2. flokki og 1. flokki. Í 1. og 2. flokki fá 9 hestar að fara brautina aftur en 5 hestar fara brautina aftur í úrslitum í 3. flokki og unglingaflokki. Knapar verða að vera í sama flokki og í sama liði allt tímabilið. Í skeiði má hver knapi keppa á eins mörgum hrossum og hann vill en getur aðeins fengið stig fyrir einn hest eins og í öðrum greinum. Þessi keppni gefur einungis stig í liðakeppninni en ekki í einstaklingskeppninni. Aðeins keppt í einum flokki og stig eftirfarandi: 1.sæti - 10 stig 2.sæti - 8 stig 3.sæti - 7 stig 4.sæti - 6 stig 5.sæti - 5 stig 6.sæti - 4 stig 7.sæti - 3 stig 8.sæti - 2 stig 9.sæti - 1 stig Reglur smalans: Smalinn dregur nafn sitt af einu mikilvægasta hlutverki íslenska hestsins frá örófi alda. Eiginleikar sem prýða góðan smala og smalahest eru nauðsynlegir ef árangur á að nást, þetta eru þættir eins og hraði, kjarkur, fimi og snerpa. Riðin er braut sem mörkuð er keilum sem ná upp á síður hests. Keilurnar skulu vera þannig útbúnar að þær falli við litla snertingu. Árangurinn ræðst af brautartíma og felldum keilum. Reiknireglur eru þær sömu og í tímabraut torfærunnar. Smalinn er hrein grein í þeirri merkingu að árangurinn er mælanlegur án frávika, þ.e. hann ræðst eingöngu af tíma og felldum keilum en ekki mati dómara. Dómarar eru engu að síður til staðar og meta hvort knapinn fari gegnum öll hlið, telja felldar keilur og hafa eftirlit með reiðmennsku knapa líkt og í öðrum keppnisgreinum. Stigin telja þannig að knapar raðast í sæti eftir besta tímanum, sá sem er fyrstur fær 300 stig, sá næsti 280, 270 o.s.frv. Við hverja fellda keilu dragast frá 14 stig. Fyrir sleppt hlið eru 28 refsistig. Yfir brúnna er ekki leyft að fara á stökki þ.e.a.s allur annar gangur er í lagi. Ef brúnni er sleppt þá er það 4x28 refsistig Gult spjald= gróf reiðmennska 30 refsistig Rautt spjald= MJÖG gróf reiðmennska ÚR LEIK! Aðgangseyrir er 1.000 kr og frítt inn fyrir 12 ára og yngri. Brautin er eins og í fyrra: Skrifað af selma Flettingar í dag: 972 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930567 Samtals gestir: 88578 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:57:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is