
Næsta
mót í Sparisjóðs-liðakeppninni er fimmgangur og tölt unglinga. Staðan í
mótaröðinni er þannig að lið 3 er efst með 90 stig, næst kemur lið 1
með 75 stig, þá lið 2 með 68 stig og fjórðu eru lið 4 með 54 stig.
Mótið
verður haldið í Þytsheimum Hvammstanga 11. mars nk. Í fimmgangi verða
tveir inn á í einu og er prógrammið, tölt, brokk, stökk, fet og skeið
(skeiðið eru tveir sprettir fjær áhorfendum og einn í einu). Í tölti
verður ekki snúið við og er prógrammið hægt tölt, hraðabreytingar og
fegurðartölt.
Skráning sendist á email [email protected] og lokaskráningardagur er þriðjudagurinn 8. mars.
Skráningargjald
er 1.500.- fyrir fullorðna en 500 fyrir unglinga 17 ára og yngri.
Skráningargjöld verður að greiða inn á reikning 1105-15-200343 kt.
550180-0499 áður en mót hefst.
Aðgangseyrir er 1.000.- og frítt fyrir 12 ára og yngri.
Mótanefnd