
Lokaskráningardagur
á morgun í Sparisjóðs-liðakeppnina. Keppt verður í fimmgangi 1. 2. og
3. flokki og tölti unglinga. Mótið verður haldið í Þytsheimum
Hvammstanga föstudaginn 11. mars nk. Í fimmgangi verða tveir inn á í
einu og verður stjórnað af þul. Prógrammið er, tölt, brokk, stökk, fet
og skeið (skeiðið eru tveir sprettir fjær áhorfendum og einn í einu). Í
tölti verður ekki snúið við og er prógrammið hægt tölt, hraðabreytingar
og fegurðartölt.
Skráning sendist á email
[email protected] og lokaskráningardagur er þriðjudagurinn 8. mars.
Skráningargjald
er 1.500.- fyrir fullorðna en 500 fyrir unglinga 17 ára og yngri.
Skráningargjöld verður að greiða inn á reikning 1105-15-200343 kt.
550180-0499 áður en mót hefst.
Aðgangseyrir er 1.000.- og frítt fyrir 12 ára og yngri.
Mótanefnd