25.03.2011 08:16Tilkynning frá Landsmóti og Landssambandi hestamanna
N1 er orðinn einn af stærstu styrktaraðilum Landsmóts og Landssambands hestamannafélaga. Öllum hestamönnum stendur nú til boða að fá N1 kortið með sérkjörum og um leið geta viðkomandi aðilar valið sitt hestamannafélag til þess að styrkja. Hálf króna af hverjum seldum lítra rennur þá sem fjáröflun til viðkomandi félags. Þeir aðilar sem nú þegar hafa N1 kort eru vinsamlega beðnir að senda tölvupóst til LH á [email protected] eða hringja í síma 514-4030 með ósk um hvaða hestamannafélag það vill að kortið sitt styrki og mun sú ósk í engu breyta um kjör viðkomandi hjá N1. LH mun síðan koma þeim skilaboðum áleiðis til N1. Það er því hagur hestamannafélaganna að þeirra félagar noti kortin frá N1 og er þetta mjög góð fjáröflun fyrir félög innan Landssambands hestamannafélaga. Aðildarfélög LH og félagsmenn fá frábær kjör með N1 kortinu. Sérstök tilboð eru í gangi á hverjum tíma varðandi fjáröflunarvörur. Hægt er að greiða fyrir allar vörur í öllum N1 verslunum og þjónustustöðvum með N1 punktum (1 punktur = 1 króna). Endilega nýtið þetta góða tækifæri sem getur verið góð tekjuöflun næstu árin og þess má geta að hver N1 korthafi fær 1000 króna afslátt af hverjum miða inn á Landsmót hestamanna 2011 og 2012. Skrifað af selma Flettingar í dag: 972 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930567 Samtals gestir: 88578 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:57:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is