
Lokamót
Sparisjóðs-liðakeppninnar er tölt. Keppt verður í 1. 2. 3. og
unglingaflokki. Mótið verður haldið í Þytsheimum Hvammstanga föstudaginn
8. apríl nk. Það verða tveir inn á í einu og prógrammið er hægt tölt,
hraðabreytingar og fegurðartölt og verður ekki snúið við.
Skráning
sendist á email [email protected] og lokaskráningardagur er
þriðjudagurinn 5. apríl. Fram þarf að koma kennitala knapa, flokkur, IS
númer hests og í hvaða liði keppandinn er. Einnig þarf að koma fram upp á
hvaða hönd skal riðið.
Skráningargjald er 2.000.- fyrir
fullorðna en 1.000 fyrir unglinga 17 ára og yngri. Skráningargjöld
verður að greiða inn á reikning 1105-15-200343 kt. 550180-0499 áður en
mót hefst.
Aðgangseyrir er 1.000.- og frítt fyrir 12 ára og yngri.
Mótanefnd