Mánudaginn 13. júní kl. 10.00 verður félagsmót Neista haldið á Blönduósvelli og verður það einnig úrtaka
fyrir Landsmót. Neisti á rétt á að senda 2 hesta
til keppni á Landsmót í hverjum flokki.
Keppt verður í A og B
flokki gæðinga, flokki barna, unglinga og ungmenna. Skráningar á mótið skulu
berast á netfangið [email protected] í síðasta lagi kl. 24.00
þriðjudagskvöld 7. júní.
Skráningargjöld
verða 2.000 kr fyrir fyrstu skráningu, 1.500 fyrir aðra skráningu og 1.000
kr eftir það. Börn og unglingar borga 800 kr.
Við skráningu þarf að koma fram IS-númer hests, kennitala knapa og keppnisgrein.
Skráningargjald
leggist inn á reikningsnúmer 0307-26-055624, kt. 480269-7139 sama dag og skráð er og þar þarf að koma fram fyrir hvaða hesta er verið að borga og senda kvittun á áðurnefnt netfang.