05.06.2011 20:00UppskeruhátíðirÞað er tími uppskeruhátíða þessa dagana í "góða" veðrinu. Það var kátur hópur sem hittist við reiðhöllina 2. júní og fór saman í góðan útreiðatúr í tilefni að knapamerkjanámskeið vetrarins voru búin og VORIÐ væri komið. 22 fullorðnir tóku próf í knapamerkjum 2 og sumir tóku próf bæði í 1 og 2. Farinn var góður útreiðatúr og síðan var grillað í reiðhöllinni og skírteini afhent. Góður hópur og vel heppnuð hátíð. Að sjálfsögðu fór Magnús Ólafsson með nokkrar vísur ![]() Í dag stormaði æskulýðurinn og áhangendur þeirra í Þingeyrar og héldu sína uppskeruhátíð þar. Það var góður hópur sem mætti þar með hesta sína um kl. 15 og riðu út á sand í rokinu. Það gerði ekkert til þó það væri "smá" gola og var sprettur á krökkunum. Gaman að sjá hve dugleg þau eru og vel ríðandi. ![]() Eftir reiðtúrinn var grillað og skírteini afhent og öll fengu þau gjöf fyrir hve frábærlega þau eru búin að standa sig í vetur. Flottir krakkar, takk takk fyrir veturinn og sjáumst vonandi aftur næsta vetur. ![]() Eins og gengur gátu ekki allir krakkarnir mætt í dag en hér er hópurinn sem kom. Á námskeiðum hjá Neista í vetur voru 33 krakkar, 17 af þeim voru í knapamerkjum og luku 14 prófum úr 1, 2 og 3. Knapamerki 3 er tekið á tveim vetrum og eru 3 krakkar sem eru í þeim hópi. Frábær aðstaða á Þingeyrum, bæði til útreiða, fótbolta innanhúss og grillaðstöðu. Gunnar og Helga, kærar þakkir fyrir að fá að koma og njóta dagsins í frábæru umhverfi. Skrifað af selma Flettingar í dag: 659 Gestir í dag: 17 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930254 Samtals gestir: 88577 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:36:03 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is