05.06.2011 21:23Félagsmót Neista og úrtaka fyrir landsmótFélagsmót Neista og úrtaka fyrir Landsmót verður haldið á Blönduósvelli mánudaginn 13. júní kl. 10.00. Neisti á rétt á að senda 2 hesta til keppni á Landsmót í hverjum flokki (ekki pollaflokkur). Keppt verður í tölti opinn flokkur, A og B flokki gæðinga, flokki polla, barna, unglinga og ungmenna. Ef ekki er næg þátttaka í einhverri keppnisgrein áskilur mótanefnd sér rétt til að fella niður þá grein. Skráningar á mótið skulu berast á netfangið [email protected] fyrir kl. 21.00 fimmtudagskvöldið 9. júní. Skráningargjöld verða 2.000 kr fyrir fyrstu skráningu, 1.500 fyrir aðra skráningu og 1.000 kr eftir það. Börn og unglingar borga 800 kr. Við skráningu þarf að koma fram IS-númer hests, kennitala knapa og keppnisgrein. Skráningargjald leggist inn á reikningsnúmer 0307-26-055624, kt. 480269-7139 sama dag og skráð er og þar þarf að koma fram fyrir hvaða hesta er verið að borga og senda kvittun á áðurnefnt netfang. Ath.
Mótanefnd Skrifað af selma Flettingar í dag: 659 Gestir í dag: 17 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930254 Samtals gestir: 88577 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:36:03 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is