27.06.2011 19:59Óli og Gáski í milliriðilSmá Landsmótsfréttir..... Keppt var í forkeppni í B-flokki í dag og komust Gáski og Ólafur Magnússon í milliriðil. Forkeppni í barna- og unglingaflokki var á sunnudag en í dag, mánudag var ungmennaflokkur og B-flokkur. Hluti Landsmótsfara mætti í Skagfjörðinn í fallegu veðri á laugardag til að nýta æfingatímann sem Neista var úthlutað og gera klárt fyrir sunnudaginn. ![]() Skemmtilegur knapafundur var kl. 10 á sunnudagsmorgni þar sem Sigurbjörn Bárðarson sagði krökkunum að þá þegar væru þau búin að ná ákveðnum sigri með því að vera komin á Landsmót, nú væri þau komin þangað og þá væri bara að hafa gaman af því að vera í brautinni, gera sitt besta með bros á vör og það gerðu krakkarnir frá Neista svo sannarlega og voru flottir fulltrúar félagsins. ![]() Haukur Marian og Viðar og Sigurgeir og Hátíð ![]() ![]() Sigurður Bjarni og Þokki Lilja Maria og Hamur Keppendur stóðu sig frábærlega og óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn. (ekki náðist mynd af Agnari, Óla og Ragga þar sem þeir kepptu í dag, mánudag og myndasmiður farinn heim). Nokkrar myndir í albúmi. Skrifað af selma Flettingar í dag: 659 Gestir í dag: 17 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930254 Samtals gestir: 88577 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:36:03 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is