07.09.2011 09:27Ævintýri norðursins 2011Stóðsmölun á Laxárdal og Skrapatungurétt. Laugardaginn 17. september verður hin árlega stóðsmölun á Laxárdal. Öllum velkomið að taka þátt í þessum einstaka reiðtúr. Lagt verður upp frá Strjúgsstöðum í Langadal kl. 10:00. Áætlað er að koma í Kirkjuskarðsrétt kl. 14 og halda þaðan kl. 16. Veitingasala verður í Kirkjuskarðs- og Skrapatungurétt. Aðstaða er til að geyma hesta frá föstudegi yfir á laugardag á Strjúgsstöðum, við sandnámu (norðan afleggjara). Þátttakendur eru beðnir að virða að ekki er leyfilegt að reka laus reiðhross í stóðsmöluninni. Laugardagskvöld: Veitingar fyrir svanga smala og aðra hestamenn á veitingastaðnum Pottinum Stórdansleikur er með Pöpum í Félagsheimilinu Blönduósi. Húsið opnað kl. 23:00. Barinn opinn. 18 ára aldurstakmark. Sunnudaginn 18. september hefjast stóðréttir í Skrapatungurétt kl. 11. Skemmtileg alíslensk stemmning. Veitingasala í réttarskála. Hver veit, kannski sér einhver draumahestinn sinn í réttunum! Ferðamannafjallkóngur verður Valgarður Hilmarsson. Ekki missa af frábærri skemmtun! Nánari upplýsingar hjá ferðamannafjallkóngi, sími 893 2059 [email protected] Skrifað af selma Flettingar í dag: 972 Gestir í dag: 18 Flettingar í gær: 2989 Gestir í gær: 102 Samtals flettingar: 930567 Samtals gestir: 88578 Tölur uppfærðar: 2.4.2025 05:57:48 |
Vafraðu umEldra efni
Um hestamannafélagið Neista Nafn: Hestamannafélagið NeistiTölvupóstfang: [email protected]Afmælisdagur: 1943Heimilisfang: 540 BlönduósStaðsetning: BlönduósUm: Hestamannafélagið Neisti hefur sitt aðsetur á Blönduósi, en er félag hestamanna í Austur-Húnavatnssýslu.Tenglarclockhere
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is